06.09.26 - 13:49
Brynjar Ingi Erluson
Vardy til Burnley (Staðfest)

Jamie Vardy er kominn aftur í enska boltann

Mynd: EPA

Jamie Vardy er kominn aftur í enska boltann

Mynd: EPA
Burnley, botnlið ensku B-deildarinnar, hefur fengið öflugan liðsstyrk í von um að rétta úr kútnum, en enski framherjinn Jamie Vardy er genginn til liðs við félagið á frjálsri sölu.
Vardy er 39 ára gamall en markanefið hefur lengi verið hans helsta vopn. Hann skoraði 200 mörk í 500 leikjum fyrir Leicester og varð Englandsmeistari með félaginu árið 2016 og bikarmeistari 2021.
Hann var valinn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar árið 2016 og varð markakóngur deildarinnar fjórum árum síðar.
Vardy lék með Cremonese á Ítalíu á síðustu leiktíð og skoraði sjö mörk í 29 leikjum áður en hann yfirgaf félagið.
Nú er hann snúinn aftur í enska boltann og hefur skrifað undir eins árs samning við Burnley í B-deildinni. Liðið þarf á mörkum að halda enda situr það á botninum með aðeins tvö stig eftir fimm leiki.

We are delighted to announce the signing of experienced forward Jamie Vardy on a contract until the end of the current season.
— Burnley FC (@BurnleyOfficial) September 6, 2026
Welcome to Burnley, Jamie ????