Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 06. október 2022 18:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Félag í Superliga hefur áhuga á Adam Ægi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Adam Ægir Pálsson hefur átt gott tímabil á láni hjá Keflavík frá Víkingi. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er hann farinn að vekja athygli erlendis og er félag í dönsku Superliga sem hefur áhuga á leikmanninum.

Adam hefur skorað fjögur mörk með Keflavík á tímabilinu og lagt upp tíu mörk. Hann er næst stoðsendinga hæstur í deildinni á eftir Tiago í Fram samkvæmt tölfræði Transfermarkt.com.

Adam hefur spilað tuttugu leiki í sumar og hjálpað Keflavík að vera í 7. sæti deildarinnar eftir að liðinu var spáð falli fyrir mót.

Adam er 24 ára kantmaður og samningur hans við Víking rennur út eftir næsta tímabil.
Athugasemdir
banner
banner
banner