Fotbolti.net
01.07.26 - 23:31
Hafþór Örn Laursen

Gaui Lýðs: Hann hefði betur getað dæmt rétt

Auglýsing
Guðjón Pétur Lýðsson, þjálfari Hauka

Guðjón Pétur Lýðsson, þjálfari Hauka

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Haukar fengu Kára í heimsókn á Ásvelli í 11. umferð 2. deildar karla, þar sem heimaliðið bar sigur af býtum 4-1. Fótbolti.net var á staðnum og fékk Guðjón Pétur Lýðsson, þjálfara Hauka í viðtal eftir leik.
Lestu um leikinn: Haukar 4 - 1 Kári
„Eins og úrslitin segja líður mér bara mjög vel. Mér fannst menn sýna sparihliðarnar sínar og menn sprungu aðeins út. Jonni (Jón Arnar Barðdal) og Daði Snær voru frábærir og sömuleiðis Jón Gísli sem er einn af bestu kantmönnum í deildinni.''

Sigurður Hrannar Þorsteinsson er á eldi í deildinni, en hann er jafn markahæstur í deildinni með 9 mörk í 11 leikjum.

„Siggi er frábær framherji og mikil gæfa að hafa hann. Hann vann vel fyrir liðið og mörkin komu úr því.''

Næsti leikur Hauka er í Gatorade-bikarnum gegn KFR á Hvolsvelli. KFR spilar í 4. deild og situr í 7. sæti. Gaui var spurður hvort að það sé eitthvað vanmat í loftinu gagnvart andstæðingnum.

„Nei ég held ekki. Við spiluðum við þá í Lengjubikarnum í vetur og þeir voru góðir. Leikurinn er á heimavelli þeirra og það er alltaf gaman að fara út á land að spila.''

Gaui fékk sitt 4. gula spjald á tímabilinu og verður því í banni í næsta leik Hauka í 2. deild, sem verður gegn Magna á Grenivík.

Ég hreinlega veit ekki af hverju ég fékk gult spjald. Við skorum löglegt mark, sóknarmaðurinn okkar tæklar boltann í markmanninn þeirra sem skellur á hann, við skorum og hann dæmir einhvern veginn brot. Ég var svosem ekki mikið að garga en bekkurinn var mjög ósáttur. Hann hefði betur getað dæmt rétt.''

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Haukar13+1829
2Selfoss13+323
3Kári13+1321
4Kormákur/Hvöt13+1420
5Dalvík/Reynir13+120
6Fjölnir13+418
7Víkingur Ó.13-518
8KFA13+414
9Magni13-1714
10Þróttur V.13-513
11Hvíti riddarinn13-613
12KFG13-2412
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.