Fotbolti.net
02.07.26 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Held að leikmennirnir sjálfir átti sig alveg á því að það voru mistök gerð"

Davíð Þór Viðarsson er yfirmaður fótboltamála hja FH.

Davíð Þór Viðarsson er yfirmaður fótboltamála hja FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, tók sérstaklega fram ákveðna leikmenn í viðtali við SÝN Sport eftir leikinn gegn ÍBV. Hann gagnrýndi markvörðinn Jökul Andrésson og varnarmanninn Arngrím Bjart Guðmundsson fyrir jöfnunarmark ÍBV og sagði að Jökull hefði gefið Eyjamönnum markið. Þá nefndi hann sérstaklega Kristján Flóka Finnbogason sem gerðist brotlegur innan eigin vítateigs í leiknum á undan gegn Þór.

Jói Kalli hefur fengið gagnrýni fyrir ummælin. Andri Geir Gunnarsson, annar af þáttarstjórnendum Steve Dagskrá, er stuðningsmaður FH og gekk svo langt í nýjasta þættinum að segja ummælin um Jökul aumingjaskap af hálfu þjálfarans.
Jói Kalli gagnrýnir eigin leikmenn - „Jökull gefur þeim bara mark"
TENGT EFNI

Jói Kalli gagnrýnir eigin leikmenn - „Jökull gefur þeim bara mark"

Fótbolti.net ræddi við Davíð Þór Viðarsson, yfirmann fótboltamála hjá FH, í dag.

Hefur þú eitthvað rætt þetta við Jóa Kalla eða tekur þú eitthvað sérstakt út úr þessu?

„Ég tek í sjálfu sér ekkert sérstakt út úr þessu. Hann talaði um vítið sem við fengum á okkur á móti Þór. Þar var bara Flóki óheppinn, heldur að hann geti hreinsað boltann en er of seinn í það og fer í Þórsarann, vítið svo sannarlega rétt niðurstaða. Markið sem ÍBV skorar er samspil margra hluta sem fara úrskeiðis frá okkur, alveg frá því að ÍBV hefur sóknina mjög aftarlega á vellinum. Við gerum bara fullt af mistökum þar og það er hluti af fótbolta: flest mörk sem þú færð á þig koma til vegna mistaka."

„Það var ekkert djúpt á þessu, við hefðum getað gert betur þar. Það var ekkert samtal um þetta milli mína og Jóa Kalla. Þetta kannski ristir djúpt hjá einhverjum, en ég held að leikmennirnir sjálfir átti sig alveg á því að það voru mistök gerð. Það er bara upp á hestinn og áfram veginn,"
segir Davíð.

FH var yfir bæði gegn Þór og ÍBV í síðustu tveimur heimaleikjunum en uppskar einungis tvö stig úr þeim leikjum.
Jóhannes Karl Guðjónsson er þjálfari FH.

Jóhannes Karl Guðjónsson er þjálfari FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH-ingar völdu í dag Jökul sem leikmann mánaðarins í júní.

FH-ingar völdu í dag Jökul sem leikmann mánaðarins í júní.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta karla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.22+4653
2Fram22+1445
3KR22+2544
4Breiðablik22+230
5ÍA22-230
6Keflavík22-528
7Stjarnan22-828
8Valur22-627
9FH22-1221
10Þór22-2821
11KA22-1320
12ÍBV22-1318
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.