Úlfur Arnar: Þetta var ekki okkar dagur
Auglýsing

Úlfur Arnar Jökulsson, þjálfari Kára

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úlfur Arnar Jökulsson, þjálfari Kára

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Úlfur Arnar Jökulsson og lærisveinar hans í Kára fóru á Ásvelli í kvöld og spiluðu þar gegn Haukum, en Haukar báru sigur af býtum 4-1. Fótbolti.net var á staðnum og fengu Úlf í smá spjall eftir leik.
Lestu um leikinn: Haukar 4 - 1 Kári
„Úrslitin voru of stór. Fyrri hálfleikurinn fór soldið með okkur, og mér fannst ég klikka aðeins í upplegginu. Eftir á að hyggja hefði ég átt að láta þá byrja fyrri hálfleik eins og við byrjuðum seinni hálfleikinn.''
„Við minnkum muninn í 2-1 í seinni hálfleik og mér fannst tímaspursmál hvenær við myndum jafna leikinn og þess vegna var mjög fúlt að fá þriðja markið á sig. Þetta var einhvern veginn ekki okkar dagur.''
2. deild hefur verið gríðarlega jöfn þetta tímabilið, en aðeins 6 stig skilja milli Kára í þriðja sæti og Hvíta Riddarans sem situr í 9. sæti. Kára var spáð falli í byrjun tímabils en eins og stendur eru þeir svokallað spútník-lið deildarinnar.
Í mínum huga var aldrei fallbarátta í kortunum og við höfum alltaf haft trú á strákunum að berjast í efri hlutanum. Það er gott að hafa 17 stig eftir fyrri umferðina en við höfum verið óheppnir upp á síðkastið og það eru nokkrir leikir sem við hefðum mögulega getað fengið tvö extra stig í.''
„Markmiðið er að gera betur í seinni umferðinni heldur en í fyrri og þá ættum við að vera á góðum stað undir lok móts.''
Næsti leikur Kára er í Gatorade-bikarnum á Blönduósvelli gegn Kormáki/Hvöt 8. júlí næstkomandi. Leikurinn verður í beinni textalýsingu á Fótbolti.net.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Haukar | 13 | +18 | 29 |
| 2 | Selfoss | 13 | +3 | 23 |
| 3 | Kári | 13 | +13 | 21 |
| 4 | Kormákur/Hvöt | 13 | +14 | 20 |
| 5 | Dalvík/Reynir | 13 | +1 | 20 |
| 6 | Fjölnir | 13 | +4 | 18 |
| 7 | Víkingur Ó. | 13 | -5 | 18 |
| 8 | KFA | 13 | +4 | 14 |
| 9 | Magni | 13 | -17 | 14 |
| 10 | Þróttur V. | 13 | -5 | 13 |
| 11 | Hvíti riddarinn | 13 | -6 | 13 |
| 12 | KFG | 13 | -24 | 12 |