Fotbolti.net
02.07.26 - 12:28
Kári Snorrason

Santi Cazorla leggur skóna á hilluna

Eftir síðasta heimaleik Oviedo á tímabilinu.

Eftir síðasta heimaleik Oviedo á tímabilinu.

Canon

Mynd: EPA

Spænski miðjumaðurinn Santi Cazorla hefur lagt skóna á hilluna.

Cazorla, sem er 41 árs gamall, hefur leikið með uppeldisfélaginu sínu Real Oviedo síðustu þrjú ár en liðið féll úr LaLiga á nýloknu tímabili.

Hann spilaði 28 deildarleiki með liðinu á tímabilinu en byrjaði aðeins sex þeirra. Hann var í stærra hlutverki tímabilið áður og átti stóran þátt í að koma liðinu upp í LaLiga.
Cazorla er þekktastur fyrir tíman sinn hjá Arsenal en hann var hjá liðinu í sex ár. Þá hefur hann jafnframt spilað fyrir Villarreal og Malaga á ferlinum. Hann lék 81 landsleik fyrir Spán og vann EM 2008 og 2012 með landsliðinu.

Hann var fjarri góðu gamni á HM 2010 þegar Spánverjar urðu heimsmeistarar vegna meiðsla. Árið 2016 lenti hann í slæmum meiðslum á hásin og gekkst hann undir 11 aðgerðir til að laga vandann.

Ein aðgerðin leiddi til drepbólgu og læknarnir sögðu Cazorla ætti að vera feginn að geta gengið aftur. Nú tíu árum síðar leggur hann skóna á hilluna.



Spilaði 180 leiki með Arsenal.

Spilaði 180 leiki með Arsenal.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.