Fotbolti.net
02.07.26 - 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Davíð Viðars: Sýndi þegar mikið var undir hjá KR hversu mikið býr í honum

Guðmundur Andri Tryggvason var keyptur frá KR.

Guðmundur Andri Tryggvason var keyptur frá KR.

Canon

Mynd: FH

Þeir Guðmundur Andri Tryggvason og Oliver Stefánsson eru gengnir í raðir FH og munu fá leikheimild þegar félagaskiptaglugginn opnar eftir tvær vikur. Oliver er varnarmaður sem kemur til FH eftir tímabil í pólsku B-deildinni og Guðmundur Andri er sóknarmaður sem keyptur er frá KR.

Fótbolti.net ræddi við Davíð Þór Viðarsson, yfirmann fótboltamála hjá FH, um leikmannamálin.
Ákvörðunin að koma heim erfið - „Verður stutt stopp neðarlega í deildinni“
TENGT EFNI

Ákvörðunin að koma heim erfið - „Verður stutt stopp neðarlega í deildinni“

„Það getur alveg verið að fáum inn fleiri, við erum að skoða það sem er í boði. Það kemur alveg klárlega til greina að við bætum meira við okkur," segir Davíð.

Tobias Carlsson verið óheppinn með meiðsli
Sænski miðvörðurinn Tobias Carlsson hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá FH. Koma Olivers, þýðir hún að Tobias sé á förum?

„Nei, það er ekkert ákveðið. Við sáum möguleikann á því að fá Oliver inn, hann býr yfir ákveðnum eiginleikum sem við teljum að passi vel inn hjá okkur. Það er ekkert ákveðið með Tobias, hann er búinn að vera dálítið óheppinn með meiðsli og þegar hann hefur spilar, t.d. í fyrri hálfleiknum á móti Þór og gegn Breiðabliki, þá hefur hann sýnt að það býr mjög margt í honum. En það er kannski erfitt að ná því 100% fram þegar maður kemst ekki á skrið vegna meiðsla."

Guðmundur Andri að snúa til baka eftir meiðsli
Hvernig er heilsan á Guðmundi Andra og Oliver, gætu þeir spilað á morgun ef þeir væru með leikheimild?

„Oliver gæti spilað, hann er 100% heill og er að æfa á fullu. Það er svona vika í það að Guðmundur Andri eigi að vera orðinn klár í að fara á fullt. Ef ekkert óeðlilegt gerist þá verða þeir báðir til taks 20. júlí (gegn Breiðabliki) í fyrsta leik eftir að þeir fá leikheimild."

Andri getur leyst fremstu fjórar stöðurnar
Úlfur Ágúst Björnsson fer til Bandaríkjanna eftir u.þ.b. mánuð til að ljúka námi við Duke háskólann. Er Guðmundur Andri hugsaður í sömu stöðu?

„Mér finnst Andri geta leyst fjórar fremstu stöðurnar á vellinum. Hann er fenginn inn að hluta til sem möguleiki þegar Úlfur fer út. Hann getur líka spilað á báðum köntunum, getur leyst þau hlutverk mjög vel. Aðalatriðið með Guðmund Andra er núna að hjálpa honum af stað aftur, mér fannst hann sýna í úrslitakeppninni í fyrra þegar mikið var undir hjá KR hversu mikið býr í honum. Ég er alveg fullviss um að við munum hjálpa honum að komast aftur á þannig skrið og hann mun hjálpa okkur að sama skapi að komast vonandi á skrið," segir Davíð.
Skagamaðurinn Oliver Stefánsson er mættur í Krikann.

Skagamaðurinn Oliver Stefánsson er mættur í Krikann.

Canon

Mynd: FH

Tobias Carlsson hefur ekki staðið undir væntingum.

Tobias Carlsson hefur ekki staðið undir væntingum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úlfur Ágúst klárar ekki tímabilið með FH.

Úlfur Ágúst klárar ekki tímabilið með FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.15+3840
2KR16+2235
3Fram15+1333
4Breiðablik15+826
5Keflavík15-419
6Valur16-619
7ÍBV15-716
8Stjarnan15-815
9ÍA15-1215
10KA15-814
11FH15-1112
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.