Segir Paragvæ hafa minnt á Ísland - „Þurfa að vera leiðinlegir til að ná úrslitum“

Paragvæar fagna sigrinum.

Mynd: EPA

Tíu ár eru liðin frá sigrinum fræga gegn Englandi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Paragvæar fagna sigrinum.

Mynd: EPA
Paragvæ sló Þýskaland út eftir vítaspyrnukeppni í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins á mánudag.
Sigurinn var vægast sagt óvæntur enda ekki á hverjum degi sem fjórfaldir heimsmeistarar detta út fyrir tæplega átta milljóna manna þjóð.
Fyrrverandi landsliðsmaðurinn Birkir Már Sævarsson var gestur í HM hringborðinu í gær þar sem hann var spurður hvort sigur Paragvæ á Þýskalandi hafi minnt á íslenska landsliðið þegar það var upp á sitt besta.

„Já, algjörlega. Paragvæ þarf að vinna með sömu hluti og við þurftum að gera, liggja til baka og vera svolítið leiðinlegir til að ná úrslitum. Þeir gerðu það sem þurfti til þess að ná að koma þessu í vítaspyrnukeppnina. Þó svo að þeir hafi fengið aðstoð frá dómurunum í einu atviki þarna.“
„Þeir gerðu það sem þurfti til þess að koma þessu í vító, tókst næstum því að klúðra því en unnu að lokum. Þessi minni lið þurfa að grípa til þessara leiða til að vinna stóru liðin,“ sagði Birkir.