Fotbolti.net
02.07.26 - 15:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Helga Rut spáir í 13. umferð Bestu deildarinnar

Helga Rut er fyrirliði U19 landsliðsins.

Helga Rut er fyrirliði U19 landsliðsins.

Canon

Mynd: Valur/Toggipop

Það eru tveir mjög áhugaverðir leikir á dagskrá í Bestu deild karla í kvöld.

Við fengum Helgu Rut Einarsdóttur, fyrirliða U19 landsliðs kvenna, til að spá í spilin fyrir umferðina. Helga er þessa stundina í Bosníu á lokakeppni Evrópumótsins með U19.
Þór 1 - 4 KR (17:00 í dag)
KR rífa sig í gang eftir óvænt tap á móti Keflavík. Amin Cosic skorar kveðjumark!

Víkingur R. 4 - 0 KA (19:15 í kvöld)
Víkingar mæta KA eftir tap í bikar á móti Breiðabliki. Öruggur sigur hjá Víking.

FH 1 - 3 Stjarnan (19:15 á morgun)
Stjarnan nær í mikilvægan sigur á útivelli. Tómas Orri skorar fyrir FH og Emil Atla setur tvö.

ÍA 0 - 2 Breiðablik (14:00 á laugardag)
Breiðablik er on a high eftir bikarleikinn og vinna öruggan sigur. Arnar Bjarki skorar og fagnar þannig skiptum sínum til Bröndby.

ÍBV 1 - 3 Valur (16:00 á laugardag)
Valur koma sterkir inn eftir þjálfaraskipti, Jónatan Ingi skorar tvö og Ingimar Stöle eitt.

Keflavík 1 - 2 Fram (19:15 á mánudag)
Fram búnir að vera a góðu runni og taka þennan leik. Sigurjón Rúnarsson skorar með góðum skalla!

Fyrri spámenn:
Elmar Kári (4 réttir)
Ragnar Bragi (4 réttir)
Gísli Gotti (4 réttir)
Daníel Freyr (3 réttir)
Tómas Guðmunds (3 réttir)
Júlíus Mar (3 réttir)
Stefán Þór (3 réttir)
Ágúst Brynjars (3 réttir)
Siggi Raggi (3 réttir)
Birkir Már (2 réttir)
Kári Sigfússon (2 réttir)
Siggi Hall (1 réttur)
KR mætir Þór núna á eftir.

KR mætir Þór núna á eftir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.