Fotbolti.net
02.07.26 - 16:03
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kjarninn

Byrjunarlið Þórs og KR: Óskar gerir fjórar breytingar - Sigurpáll í markinu

Sigurpáll stendur vaktina í marki KR.

Sigurpáll stendur vaktina í marki KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Klukkan 17:00 tekur Þór á móti KR á VÍS vellinum í 13. umferð Bestu deildarinnar. Þór situr í botnsæti deildarinnar fyrir leikinn og KR er í 2. sæti.

Þór, sem er án sigurs frá því í 3. umferð, hefur einungis fengið eitt stig úr síðustu níu leikjum sínum. KR hefur þá ekki unnið á útivelli í síðustu fjórum leikjum í deild og bikar.

Í síðustu umferð tapaði Þór 2-4 á móti Val á heimavelli en KR tapaði 3-2 gegn Keflavík á útivelli.
Síðasti dans Amins með KR á morgun
TENGT EFNI

Síðasti dans Amins með KR á morgun

Lestu um leikinn: Þór 3 - 3 KR
Siggi Höskulds, þjálfari Þórs, gerir tvær breytingar á sínu liði frá leiknum gegn Val. Yann Emmanuel Affi tekur út leikbann og Fannar Daði Malmquist tekur sér sæti á bekknum. Inn í liðið koma þeir Ragnar Óli Ragnarsson og Sigfús Fannar Gunnarsson.

Óskar Hrafn, þjálfari KR, gerir fjórar Breytingar á sínu liði frá leiknum gegn Keflavík. Sigurpáll Sören Ingólfsson stendur vaktina á milli stanganna og Halldór Snær Georgsson tekur sér sæti á bekknum. Þeir Eiður Gauti Sæbjörnsson, Ástbjörn Þórðarson og Amin Cosic taka sér sömuleiðis sæti á bekknum. Inn í útilínuna koma þeir Galdur Guðmundsson, Gabríel Hrannar Eyjólfsson og Sigurður Breki Kárason.

Byrjunarlið Þór

Aron Birkir Stefánsson (fyrirliði), Ásbjörn Líndal Arnarsson, Einar Freyr Halldórsson, Kristófer Kristjánsson, Bjarni Guðjón Brynjólfsson, Sverrir Páll Ingason, Ragnar Óli Ragnarsson, Vilhelm Ottó Biering Ottósson, Ágúst Eðvald Hlynsson, Christian Jakobsen, Sigfús Fannar Gunnarsson

Byrjunarlið KR

Sigurpáll Sören Ingólfsson, Michael Osei Akoto, Finnur Tómas Pálmason, Aron Sigurðarson (fyrirliði), Luke Morgan Conrad Rae, Gabríel Hrannar Eyjólfsson, Arnór Ingvi Traustason, Hrafn Tómasson, Sigurður Breki Kárason, Galdur Guðmundsson, Orri Hrafn Kjartansson

Sigfús Fannar kemur inn í liðið hjá Þór.

Sigfús Fannar kemur inn í liðið hjá Þór.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.15+3840
2KR16+2235
3Fram15+1333
4Breiðablik15+826
5Keflavík15-419
6Valur16-619
7ÍBV15-716
8Stjarnan15-815
9ÍA15-1215
10KA15-814
11FH15-1112
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.