Fotbolti.net
02.07.26 - 19:18
Víðir Sigurðsson

Víðir Sig: Fjórði markvörðurinn sem skorar - Ögmundur skoraði átta - Ráðherrann með tvö

Aron Birkir Stefánsson markvörður og fyrirliði Þórs skoraði magnað mark í dag.

Aron Birkir Stefánsson markvörður og fyrirliði Þórs skoraði magnað mark í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Birkir Stefánsson, fyrirliði og markvörður Þórs á Akureyri, komst í dag fámennan hóp markvarða sem hafa skorað í efstu deild karla í íslenska fótboltanum en hann er aðeins sá fjórði í röðinni.
Aron skoraði ótrúlegt mark beint úr aukaspyrnu af eigin vallarhelmingi í dag þegar Þórsarar mættu KR-ingum á Akureyri og kom þeim í 3-0 eftir aðeins fimmtán mínútna leik. Akureyrarliðinu tókst ekki að verja forskotið og leiknum lauk með jafntefli, 3-3.

Þorsteinn skoraði fyrstur
Þorsteinn Ólafsson landsliðsmarkvörður frá Keflavík varð fyrstur markvarða til að skora í deildinni. Þorsteinn jafnaði metin fyrir Keflvíkinga gegn Skagamönnum, 2-2, skömmu fyrir lok leiks liðanna í síðustu umferð deildarinnar árið 1976. “Skoraði glæsilega,” sagði Steinar J. Lúðvíksson um markið í Morgunblaðinu.

Þetta var skemmtilegt fyrir Þorstein sem lék þarna kveðjuleik í bili með Keflavík en hann var á leið til Svíþjóðar þar sem hann stundaði nám og spilaði næstu tvö árin.

“Það er óneitanlega skemmtilegt að kveðja með marki,” sagði Þorsteinn við Sigmund Ó. Steinarsson hjá Tímanum eftir leikinn. Þorsteinn lést í síðasta mánuði, 75 ára að aldri, og þetta var hans eina mark á ferlinum en hann lék 143 leiki í efstu deild, 118 með Keflavík og 25 með Þór, og samtals 250 deildaleiki heima og erlendis á farsælum ferli.

Skoraði úr gríðarlöngu útsparki
Jón Þorbjörnsson var næstur í röðinni, aðeins tveimur árum síðar, þegar hann skoraði fyrir Skagamenn í sigri á Víkingum, 4-2, á “Hallarflötinni” svokölluðu í Laugardal 14. júní 1978.

Þetta var fyrsta mark leiksins, á lokamínútu fyrri hálfleiks, en Jón tók þá gríðarlangt útspark frá eigin vítateig og skoraði hjá kollega sínum í Víkingsmarkinu, Diðrik Ólafssyni.

“Kom þetta á síðustu mínútu fyrri hálfleiks og spyrnti Jón yfir völlinn endilangan. Diðrik var kominn nokkuð út úr markinu og Matthías Hallgrímsson, sem fylgdi risaspyrnu Jóns Þorbjörnssonar eftir, truflaði hann þannig að knötturinn skaust í völlinn og síðan inn í markið við fætur Diðriks,” skrifaði Steinar J. Lúðvíksson í Morgunblaðið.

“Þetta var meiri grísinn,” sagði Jón við Hall Hallsson hjá Dagblaðinu eftir leikinn. Jón var Þróttari en lék í marki Skagamanna á árunum 1977 til 1979 og varð bæði Íslands- og bikarmeistari með þeim áður en hann lauk ferlinum með uppeldisfélaginu. Jón lék 80 leiki í efstu deild með Þrótti og ÍA.

Albert tryggði ÍBV sigur
Albert Sævarsson varð þriðji markvörðurinn til að skora í deildinni. Hann skoraði seinna mark Eyjamanna úr vítaspyrnu og gulltryggði þeim 2-0 sigur gegn Selfyssingum á útivelli í 20. umferð úrvalsdeildarinnar árið 2010.

Albert var í ágætri æfingu sem vítaskytta. Hann skoraði fjögur mörk fyrir Njarðvík í 1. og 2. deild árin 2006 og 2007 og þá skoraði hann af vítapunktinum fyrir B 68 frá Tóftum í færeyska fótboltanum.

Albert er Grindvíkingur og varði mark félagsins í 149 leikjum í efstu deild en einnig í 52 leikjum með ÍBV, ásamt því að spila með Njarðvík og B 68. Hann lék nákvæmlega 300 deildaleiki á ferlinum á Íslandi og í Færeyjum.

Ögmundur skoraði átta mörk
Fleiri markverðir hafa komist á markalista með sínum liðum í öðrum deildum Íslandsmótsins, þar á meðal Gunnleifur Gunnleifsson fyrrverandi landsliðsmarkvörður sem skoraði fyrir bæði HK og KVA í 2. og 3. deild.

Ögmundur Kristinsson (eldri) skoraði átta mörk úr vítaspyrnum sem markvörður í næstefstu deild með Fylki og Ármanni, á árunum 1975 til 1981, en hann þótti afar örugg vítaskytta.

Meðal markvarða sem hafa skorað í efstu deild kvenna eru Þóra Björg Helgadóttir fyrir KR og Breiðablik, Sandra Sigurðardóttir fyrir Stjörnuna, Sigríður Fanney Pálsdóttir fyrir KR, Berglind Magnúsdóttir fyrir Þór/KA, Sigfríður Sophusdóttir fyrir Breiðablik og Hanna Björg Kjartansdóttir fyrir Stjörnuna.

Ráðherrann markahæstur sem markmaður
Logi Már Einarsson, núverandi menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, var um tíma markahæstur í 2. deild (sem þá hét 3. deild) eftir að hafa skorað í fyrstu tveimur leikjum Magna á Íslandsmótinu árið 1984. Hann varði mark Grenivíkurliðsins um skeið.

Logi, sem þá var nemandi við Menntaskólann á Akureyri, skoraði bæði mörkin með gríðarlöngum útspörkum. Hann sá um tvö af þremur mörkum Magna í þessum tveimur fyrstu leikjum tímabilsins, gegn Val frá Reyðarfirði og Leiftri frá Ólafsfirði.

Logi er einmitt sonur markvarðarins Einars Helgasonar sem bæði varði mark Akureyringa (ÍBA) og þjálfaði liðið um árabil á sjöunda áratug síðustu aldar. Einar skoraði sjálfur eitt mark fyrir Völsung, úr vítaspyrnu, í næstefstu deild árið 1970.
Þorsteinn Ólafsson skoraði fyrir Keflavík gegn ÍA.

Þorsteinn Ólafsson skoraði fyrir Keflavík gegn ÍA.

Canon

Mynd: Þór

Jón Þorbjörnsson skoraði fyrir ÍA gegn Víkingi.

Jón Þorbjörnsson skoraði fyrir ÍA gegn Víkingi.

Canon

Mynd: Facebook

Albert Sævarsson skoraði fyrir ÍBV.

Albert Sævarsson skoraði fyrir ÍBV.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Logi Már Einarsson varði mark Magna og skoraði með löngum útspörkum.

Logi Már Einarsson varði mark Magna og skoraði með löngum útspörkum.

Canon

Mynd: Úr einkasafni

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.