Þórsarar spila í sérstökum treyjum - Söfnuðu sex milljónum fyrir Gedda

Á myndinni eru Geddi og Erla ásamt Jasoni Orra sem hannaði treyjurnar og Evu verslunarstjóra Macron sem framleiddi treyjurnar og aðstoðaði gríðarlega í öllu ferlinu.

Mynd: Fyrir Gedda

Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke

Í dag afhentu vinir Gests Arasonar honum upphæðina sem hann fær úr treyjusölunni sem sett var af stað fyrr í sumar. Upphæðin sem Geddi fær er sex milljónir króna.
Geddi, sem er mikill Þórsari, greindist með bráða hvítblæði í maí og í kjölfarið hrintu stuðningsmenn af stað söfnunar- og styrktarátaki þar sem seldar voru sérhannaðar Gedda treyjur.
Verkefnið fór gríðarlega vel af stað og afhentu félagar úr fótboltadeild Þórs honum og Erlu Bryndísi Jóhannsdóttur, eiginkonu hans, ágóðann.

„Við þökkum enn og aftur kærlega fyrir stuðninginn við Gedda okkar," segir í færslu á samfélagsmiðlum Þórs.
Þór tekur á móti KR á VÍS vellinum í Bestu deildinni klukkan 17:00 í dag og verður hægt að kaupa sérstakan Gedda miða á leikinn og styrkja hann þannig. Þórsliðið mun spila leikinn í Gedda treyjunni.
„Ég vil þakka öllum sem keyptu treyjuna og styrktu Gedda. Einnig vill ég þakka Macron fyrir aðstoðina síðustu vikur, þetta hefur verið ómetanlegt. Síðast en ekki síst þakka ég Aroni Elvari kærlega fyrir að sitt framlag í merkingarvinnunni með mér," skrifaði Jason Orri Geirsson sem sá að miklu leyti um framkvæmdina.