Fotbolti.net
02.07.26 - 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dressmann

Arnar Laufdal spáir í næstu leiki HM

Arnar sýnir hér lipra takta.

Arnar sýnir hér lipra takta.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það styttist í að 32-liða úrslitin á HM klárist. Það eru þrír áhugaverðir leikir framundan en við fengum sjálfan Arnar Laufdal til að spá í leikina. Arnar er þekktur fyrir að sjá um samfélagsmiðla fyrir KSÍ og Breiðablik.
Spánn 3 - 0 Austurríki (19:00 í kvöld)
Spánverjarnir rúlla yfir Austurríki og setja í fimmta gír, sérstaklega ef Rangnick mætir með frægu Gegenpressuna sína. Yamal, Oyarzabal og Llorente með mörkin.

Portúgal 1 - 0 Króatía (23:00 í kvöld)
Held það verði svipað bras og Kólumbíuleikurinn um daginn þar sem að leikar verða hnífjafnir en Bruno Fernandes mun bjóða upp á biluð einstaklingsgæði og senda Portúgalina áfram í 16 liða úrslit.

Sviss 2 - 0 Alsír (03:00 í nótt)
Þessir leikmenn frá Sviss eru bara helvíti segir og held að Alsíringarnir verða mjög lítil fyrirstaða og þetta verður frekar leiðinlegur 2-0 sigur. Ndoye og kóngurinn, Manzambi skorar núna þriðja leikinn í röð
Lamine Yamal.

Lamine Yamal.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.