Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 06. október 2022 23:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Joe Cole um Vieira: Þessi gaur er geggjaður
Fabio Vieira fagnar marki sínu í kvöld
Fabio Vieira fagnar marki sínu í kvöld
Mynd: EPA

Joe Cole fyrrum leikmaður West Ham, Chelsea og Liverpool hrósaði Fabio Vieira miðjumanni Arsenal í hástert fyrir frammistöðu sína gegn Bodö/Glimt í kvöld.


Vieira lagði upp eitt og skoraði annað í 3-0 sigri liðsins í kvöld.

„Það sem ég elska við Vieira er að þessi afgreiðsla geislar af sjálfstrausti. Hann hefur sagt: Ég ætla að setja þetta upp í þaknetið með vinstri fæti og með opinn líkamann," sagði Cole.

„Allt sem hann gerir er með tilgang og hann er einn af þessum sem er góður tæknilega og með sturlaðan vinstri fót."

„Hann er í samkeppni við Odegaard en þessi gaur er geggjaður leikmaður," sagði Cole að lokum.


Athugasemdir
banner
banner
banner