Fotbolti.net
08.09.26 - 10:50
Elvar Geir Magnússon

Turkish Airlines framan á treyjum Liverpool

Turkish Airlines kemur í stað Standard Chartered.

Turkish Airlines kemur í stað Standard Chartered.

Canon

Mynd: EPA

Liverpool mun fá nýjan styrktaraðila framan á treyjur sínar á næsta tímabili en það er tyrkneska flugfélagið Turkish Airlines. Verðmæti samningsins er talið yfir 60 milljónir punda á ári.

Turkish Airlines kemur í stað Standard Chartered en um fimm ára samning er að ræða.
Liverpool og Manchester United hafa því gert arðbærustu treyjusamninga í sögu ensku deildarinnar en samningur United við Snapdragon er einnig virði meira en 60 milljóna punda á ári.

„Þetta er tímamótasamningur fyrir okkur og við erum himinlifandi að bjóða Turkish Airlines velkomna sem aðalstyrktaraðila okkar frá júní 2027,“ segir Ben Latty, viðskiptastjóri Liverpool.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.