Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 06. október 2022 11:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Óvíst hvort Walker verði með á HM
Kyle Walker.
Kyle Walker.
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Kyle Walker missir mögulega af heimsmeistaramótinu sem fram fer í Katar í vetur.

Walker, sem er algjör lykilmaður í enska landsliðinu, þurfti að gangast undir aðgerð á nára eftir að hafa meiðst í 6-3 sigri Manchester City gegn Manchester United um síðustu helgi.

Hann missti af 5-0 sigri Man City gegn FC Kaupmannahöfn í Meistaradeildinni í gær.

Það er vonast til þess að Walker geti spilað á HM sem hefst eftir um einn og hálfan mánuð, en það veltur allt á því hvernig bataferlið gengur hjá honum.

Walker hefur verið lykilmaður fyrir enska landsliðið á síðustu stórmótum og það væri sárt fyrir liðið að vera án hans í Katar.
Athugasemdir
banner
banner