Fotbolti.net
06.10.26 - 21:47
Brynjar Ingi Erluson

Hlutabréf Hákonar grænust - „Okkar besti maður í þessum glugga“

Hákon Rafn Valdimarsson var stórkostlegur í þessu verkefni

Hákon Rafn Valdimarsson var stórkostlegur í þessu verkefni

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Hákon Rafn Valdimarsson, markvörður íslenska A-landsliðsins, var besti maður liðsins í þessu landsleikjaverkefni að mati Kára Árnasonar og Lárusar Orra Sigurðssonar.
„Ekkert pláss fyrir farþega í hópnum lengur“
TENGT EFNI

„Ekkert pláss fyrir farþega í hópnum lengur“

Lestu um leikinn: Eistland 0 - 0 Ísland
Mikil barátta hefur verið um markvarðarstöðuna hjá íslenska landsliðinu frá því að Hannes Þór Halldórsson lagði hanskana á hilluna. Hákon Rafn og Elías Rafn Ólafsson hafa undanfarið keppt um sætið en eftir þetta landsleikjaverkefni virðist Hákon hafa fest sig í sessi sem aðalmarkvörður.

Hann stóð sig frábærlega í öllum fjórum leikjunum. Í þeim fyrsta varði hann vítaspyrnu og úr dauðafæri gegn Eistum, var öruggur þegar á reyndi gegn Lúxemborg og Búlgaríu og átti svo enn einn stórleikinn í markalausa jafnteflinu við Eistland í kvöld.

„Hákon er vel staðsettur og öruggur í öllum sínum aðgerðum og ef við komum aftur inn á það hver hlutabréf í hverjum eru orðin grænust eftir þetta þá er það hann,“ sagði Kári.

Lárus tók undir það og valdi Hákon besta mann landsleikjahlésins.

„Hann er búinn að taka sinn séns og búinn að vera okkar besti maður í þessum glugga. Búinn að eiga mjög flotta leiki,“ sagði hann.

Hákon var valinn maður leiksins í báðum viðureignunum við Eistland hér á Fótbolta.net. Hann fékk einnig átta í einkunn gegn Búlgaríu og sjö gegn Lúxemborg.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.