Fotbolti.net
06.10.26 - 17:57
Brynjar Ingi Erluson

Nunez skoraði í stórsigri á Indlandi

Darwin Nunez skoraði í sigri Úrúgvæa

Darwin Nunez skoraði í sigri Úrúgvæa

Canon

Mynd: EPA

Úrúgvæska landsliðið pakkaði Indlandi saman, 6-1, í vináttulandsleik í Kolkata á Indlandi í dag.
Þetta er önnur stórþjóðin frá Suður-Ameríku sem Indland mætir í þessu landsleikjahléi. Liðið tapaði 4-0 fyrir Brasilíu í síðasta leik og fékk enn verri útreið gegn Úrúgvæ en náði þó að skora í þetta sinn.

Darwin Nunez, fyrrverandi framherji Liverpool, skoraði úr vítaspyrnu á 11. mínútu en Indverjar jöfnuðu óvænt ellefu mínútum síðar. Max Araujo kom Úrúgvæ aftur yfir á 28. mínútu og staðan var 2-1 í hálfleik.

Gestirnir bættu við fjórum mörkum í síðari hálfleik. Rodrigo Zalazar og Araujo skoruðu með sex mínútna millibili áður en Juan Sanabria og Rodrigo Aguirre fullkomnuðu 6-1 stórsigurinn á lokakaflanum.

Úrúgvæ vann því tvo af þremur leikjum sínum í þessu landsleikjaverkefni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.