06.11.26 - 23:18
Ívan Guðjón Baldursson
Lampard ósáttur með dómgæsluna: Skoruðu með hendi

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Frank Lampard þjálfari Coventry City var ósáttur með dómgæsluna eftir tap gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

TENGT EFNI
England: Thierno Barry allt í öllu
Coventry náði forystunni snemma í síðari hálfleik en Thierno Barry svaraði með tveimur mörkum og stoðsendingu, svo lokatölur urðu 3-1 fyrir Everton.
„Ég er ánægður með frammistöðuna en það voru að lokum stórar dómaraákvarðanir sem réðu úrslitum," sagði Lampard og átti þá við þrjú vafaatriði úr leiknum.
Í einu atviki virtist James Tarkowski toga í hárið á leikmanni Coventry, en VAR-teymið ákvað ekki að skerast inn í leikinn til að dæma rautt spjald. Í öðru atviki vildi Lampard fá vítaspyrnu fyrir brot á Taiwo Awoniyi við vítateigslínuna og í þriðja atvikinu virtist Thierno Barry skora með hendi.
„Ég er búinn að sjá þessi atvik frá bestu sjónarhornunum og get því verið ósammála dómurunum. Ég skil að hártogið sé kannski á gráu svæði, en ég skil ekki hvernig var ekki gert neitt í því.
„Mér fannst vera brotið á Taiwo innan teigs og svo skora þeir eitt marka sinna með hendi. Það sást ekki frá öllum sjónarhornum, en það var eitt sjónarhorn sem sýndi að boltinn snerti hendina á framherjanum áður en hann endaði í netinu."
Nýliðar Coventry eru með 9 stig eftir 10 umferðir í ensku úrvalsdeildinni.
„Ég er að sjá skýr merki um framfarir og við höfum fulla trú á að geta náð settum markmiðum á tímabilinu. Það er góður liðsandi í hópnum og við þurfum að halda áfram að leggja mikla vinnu á okkur."

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 9 | +9 | 24 |
| 2 | Man City | 9 | +10 | 21 |
| 3 | Brighton | 9 | +17 | 19 |
| 4 | Chelsea | 9 | +4 | 16 |
| 5 | Everton | 10 | +2 | 16 |
| 6 | Liverpool | 9 | +2 | 15 |
| 7 | Brentford | 9 | +7 | 14 |
| 8 | Bournemouth | 9 | +1 | 12 |
| 9 | Tottenham | 9 | 0 | 12 |
| 10 | Aston Villa | 9 | -3 | 12 |
| 11 | Hull City | 9 | +1 | 11 |
| 12 | Leeds | 9 | +1 | 11 |
| 13 | Newcastle | 9 | -3 | 11 |
| 14 | Ipswich Town | 9 | -4 | 11 |
| 15 | Fulham | 9 | -2 | 9 |
| 16 | Coventry | 10 | -9 | 9 |
| 17 | Man Utd | 9 | -5 | 7 |
| 18 | Crystal Palace | 9 | -12 | 7 |
| 19 | Nott. Forest | 9 | -6 | 6 |
| 20 | Sunderland | 9 | -10 | 5 |