06.11.26 - 22:43
Ívan Guðjón Baldursson
Missti af landsliðssæti og svaraði með marki

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Kiernan Dewsbury-Hall viðurkennir að hann hafi orðið fyrir vonbrigðum þegar hann var ekki partur af enska landsliðshópnum fyrir komandi landsleikjahlé.

TENGT EFNI
England: Thierno Barry allt í öllu
Hann var á sínum stað í byrjunarliði Everton og átti góðan leik áður en hann innsiglaði 3-1 sigur gegn Coventry fyrr í kvöld. Dewsbury-Hall er 28 ára gamall og hefur aldrei spilað fyrir England.
„Þetta var mjög mikilvægur sigur eftir stórkostlega viku," sagði Dewsbury-Hall, en Everton vann tvo leiki í röð gegn Newcastle United fyrir sigurinn í kvöld. „Þrír leikir, þrír sigrar. Ég er svo ánægður með hópinn. Við vorum mjög góðir í kvöld, við förum mjög ánægðir inn í þetta landsleikjahlé.
„Ég ætla ekki að ljúga, það voru vonbrigði að vera ekki valinn í landsliðshópinn. Mig dreymir um að spila fyrir landsliðið og ég veit að ég var nálægt því að vera valinn. Ég er sorgmæddur en samt stoltur af sjálfum mér fyrir hvernig ég brást við. Eina sem ég get gert er að halda áfram að spila vel og vonandi verð ég valinn einn daginn."
Dewsbury-Hall er kominn með 3 mörk og 2 stoðsendingar í 15 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu. Hann er að njóta þess að spila í holunni fyrir aftan Thierno Barry sem hefur verið að raða inn mörkum.
„Ég er að njóta þess virkilega mikið að spila með Thierno, við tengjum vel saman inni á vellinum og hann er frábær leikmaður sem á skilið að skora öll þessi mörk. Ég elska hlutverkið mitt í liðinu þar sem ég fæ mikið frelsi til að athafna mig um allan völl."