Fotbolti.net
06.12.24 - 09:27
Elvar Geir Magnússon

Stuðningsmenn Spurs létu Postecoglou heyra það - „Ekki hrifinn af því sem var sagt“

Postecoglou hlustar á stuðningsmenn á meðan öryggisvörður segir honum að halda sig í fjarlægð.

Postecoglou hlustar á stuðningsmenn á meðan öryggisvörður segir honum að halda sig í fjarlægð.

Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham hefur aðeins unnið einn af síðustu sex leikjum og reiðir stuðningsmenn liðsins létu stjórann Ange Postecoglou heyra það eftir 1-0 tap gegn Bournemouth í gær.

Postecoglou fór upp að stuðningsmönnum þó öryggisverðir hafi ráðlagt honum að halda sig frá þeim.
England: Bournemouth verðskuldaði sigurinn gegn Tottenham
TENGT EFNI

England: Bournemouth verðskuldaði sigurinn gegn Tottenham

„Ég skil að stuðningsmenn séu ósáttir. Þeir eiga fullan rétt á því. Þeir létu óánægju sína skýrt í ljós og ég meðtók hana. Ég er ekki hrifinn af því sem var sagt við mig því ég er manneskja en ég þarf að höndla það," sagði Postecoglou í viðtali eftir leik.

„Ég hef verið það lengi í þessum bransa að ég veit að þegar hlutirnir ganga ekki vel þá þarftu að skilja pirring og vonbrigði. Ég get bara sagt að sjálfur er ég mjög svekktur og mun berjast fyrir því að laga hlutina."

Tottenham er í 10. sæti deildarinnar eftir úrslitin í gær.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.