10.11.26 - 20:59
Brynjar Ingi Erluson
Stefán Teitur: Snýst ekki um hvað ég vil

Stefán Teitur Þórðarson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stefán er að spila allt annað hlutverk hjá Hannover

Mynd: Hannover 96

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stefán Teitur Þórðarson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Skagamaðurinn Stefán Teitur Þórðarson er brattur fyrir komandi landsliðsverkefni, þar sem fram undan eru leikir gegn Búlgaríu og Lúxemborg í Þjóðadeildinni. Hann viðurkennir þó að þurfa að skipta aðeins um gír taktískt séð þegar hann kemur til móts við landsliðið.
Ísland er í góðri stöðu til að tryggja sér efsta sæti riðilsins í Þjóðadeildinni.
Stefán segir það geggjað að vera kominn aftur til móts við landsliðið eftir nokkuð erfiða byrjun á tímabilinu með Hannover.
„Það er bara geggjað. Þetta er orðinn rosalega þéttur hópur, margir vinir og við erum búnir að vera lengi saman þannig að það er alltaf gott að koma og fínt að fyrsta æfingin er alltaf að ná svolítið leikjunum úr helginni út úr sér. Nú er að koma sér aftur landsliðstaktíkina. Þannig að já, það var bara mjög fínt,“ sagði Stefán.
Arnar Gunnlaugsson hefur notað Stefán í öðru hlutverki en hann er vanur undanfarið. Í síðasta landsliðsverkefni lék hann sem miðvörður, en hjá Hannover hefur hann verið mun framar á vellinum.
„Já, það er allt öðruvísi. Ég var svolítið, eða mun hærra í Hannover og nánast bara tía, 'second striker' í síðasta leik. Þannig að það er allt öðruvísi að koma hingað og vera hafsent hér. Það er krefjandi verkefni og mér finnst það mjög skemmtilegt.“
Viltu að þetta sé svona, að þú sért í ólíkum hlutverkum hjá félagsliði og landsliði?
„Vilja og ekki vilja. Hver þjálfari sér bara hlutina öðruvísi og fyrir mér er það ekkert eitthvað: 'Hvar viltu spila?'. Þú spilar bara það sem að þjálfarinn í þínu liði segir að spila og mér finnst það mjög skemmtilegt með báðar stöður. Mér fannst ég spila mjög vel sem hafsent í síðasta verkefni og sama á við í Hannover. Mér hefur persónulega gengið mjög vel og ég held að með mitt fótbolta IQ þá gengur þetta.“
Stefán lék mun framar á vellinum í síðasta leik Hannover og skoraði eitt af mörkum liðsins. Hann segir liðið enn vera að finna taktinn eftir þjálfaraskipti.
„Í síðasta leik var ég framar en ég hef verið. Við höfum svolítið bara verið að finna svona okkar rythma og okkar uppstillingu eftir að nýi þjálfarinn kom inn. Okkur hefur vantað svolítið svona 'presence' í boxinu þannig að hann ákvað að færa mig aðeins ofar. Það gekk bara vel, skoraði mark og náðum í fínasta stig úti á móti Heidenheim. Þannig það er bara mjög gaman líka að vera svona ofarlega,“ sagði hann um hlutverkið.
Stefán er jafnframt ánægður með Sandro Wagner sem tók við sem þjálfari liðsins í byrjun tímabilsins og segir samstarf þeirra hafa gengið vel.
„Hann er bara mjög flottur með mikla orku, vill spila með mjög 'high intensity' og svona þýskur með 'gegenpressing' og mikill þjálfari. Ég og hann eigum bara rosalega gott samstarf sem fyrirliði og þjálfari líka og er ég bara mjög ánægður með hvernig hann er að koma inn í þetta,“ sagði hann í lokin um Hannover.
En aftur að landsliðinu, sem er með átta stig eftir góðan landsleikjaglugga í síðasta mánuði. Stefán segir stemninguna í hópnum afar góða og að leikmenn séu staðráðnir í að klára verkefnið.
„Stemningin í hópnum er bara rosalega góð. Tveir sigrar og tvö jafntefli, en við hefðum viljað kannski ná inn öðrum sigri á móti Eistlandi, en erum á toppnum og búnir að fá okkur einungis eitt mark og á þeim stað sem að við vildum vera eftir þennan fyrsta glugga og það er bara okkar að klára þetta núna.“
Ísland mætir Búlgaríu í fyrri leik sínum í þessum landsleikjaglugga og Stefán er bjartsýnn á að liðið geti náð í þrjú stig.
„Bara mjög vel Við þurfum bara að koma með mikið orkustig, mikið tempó og halda leiknum á okkar grundu. Ekki leyfa leiknum að fara í það sem að þeir vilja og þá eigum við að vinna þetta lið,“ sagði hann í lokin.