Fotbolti.net
10.11.26 - 21:28
Brynjar Ingi Erluson

Stjóri Palace gæti snúið aftur til Lens

Pierre Sage

Pierre Sage

Canon

Mynd: EPA

Pierre Sage, stjóri Crystal Palace, verður væntanlega rekinn á næstu dögum eftir slaka byrjun á tímabilinu, en hann hefur þegar verið orðaður við endurkomu til síns gamla félags, Lens.
Sage hætti með Lens eftir stórkostlegt síðasta tímabil þar sem liðið var lengi vel í titilbaráttu við Paris Saint-Germain og tókst að vinna franska bikarinn.

Hann tók við Palace eftir að Oliver Glasner lét af störfum, en byrjunin hjá enska félaginu hefur verið allt annað en góð. Palace er í fallsæti eftir tíu umferðir, aðeins nokkrum mánuðum eftir að hafa fagnað sigri í Sambandsdeildinni.

Stjórnarmenn Palace hafa nú tekið ákvörðun um að reka Sage, en enn á eftir að tilkynna hana opinberlega.

Á sama tíma er gamla félagið hans, Lens, í miklum vandræðum. Yannick Cahuzac hefur verið rekinn úr þjálfarastólnum og er þar með annar þjálfarinn sem fær að taka pokann sinn hjá félaginu á tímabilinu, en Dino Toppmöller var rekinn í byrjun þess.

Lens situr í 13. sæti frönsku deildarinnar og hefur aðeins náð í þrjú stig í Meistaradeildinni.

Franskir fjölmiðlar segja Lens vilja fá Sage aftur til félagsins, en samkvæmt heimildum nærri þjálfaranum eru litlar líkur á að það takist. Sage er sagður vilja taka sér frí frá fótboltanum og mögulega snúa aftur í þjálfun eftir tímabilið.

Það á því eftir að koma í ljós hvort Lens tekst að sannfæra Sage um að snúa aftur, en fyrst þarf Palace auðvitað að ganga formlega frá brottrekstri hans.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.