07.01.05 - 14:35
Elvar Geir Magnússon
Ívar Björnsson til Fram (Staðfest)




Gengið hefur verið frá félagaskiptum Ívars Björnssonar úr 1.deildarliði Fjölnis yfir í úrvalsdeildarlið Fram. Ívar er 19 ára miðjumaður og hefur verið einn besti leikmaður Fjölnis undanfarin ár en hann á landsleiki að baki með U17 og U19 landsliðum Íslands.
Ívar lék alla 18 leiki Fjölnis í 1.deildinni í fyrra og skoraði fjögur mörk. Í VISA bikarnum lék hann alla þrjá leiki liðsins og skoraði tvö mörk. Hann er fjórði leikmaðurinn sem gengur í raðir Safamýrarliðsins fyrir tímabilið 2005 en hinir þrír eru Þórhallur Dan Jóhannsson frá Fylki, Kristinn Darri Röðulsson frá ÍA og Víðir Leifsson frá FH.
Þá ætlar Ólafur H. Kristjánsson þjálfari liðsins að fá tvo sterka danska leikmenn til liðsins fyrir sumarið, miðjumann og sóknarmann.
Þá ætlar Ólafur H. Kristjánsson þjálfari liðsins að fá tvo sterka danska leikmenn til liðsins fyrir sumarið, miðjumann og sóknarmann.
