Fotbolti.net
07.01.05 - 15:34
Elvar Geir Magnússon

Andreas Johansson til Wigan (Staðfest)

Andreas Johansson.

Andreas Johansson.

Canon
Wigan Athletic sem stefnir á að sigra ensku 1.deildina hefur keypt Andreas Johansson, sænskan landsliðsmann, frá Djurgarden á hálfa milljón punda. Paul Jewell stjóri Wigan hefur verið á eftir Johansson um nokkurt skeið en nú hefur hann loks krotað undir þriggja ára samning við félagið.
Johansson er 26 ára gamall og verður líklega í fyrsta skipti í leikmannahópi Wigan þann 15.janúar þegar þeir leika gegn botnliði Rotherham United. Hann er víst í fínu formi enda hefur hann verið að leika með Djurgarden í Royal League í vetur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.