Fotbolti.net
07.01.05 - 16:44

Þórarinn Kristjánsson til Aberdeen (Staðfest)

Þórarinn fagnar bikarmeistaratitlinum

Þórarinn fagnar bikarmeistaratitlinum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Keflvíkingurinn Þórarinn Kristjánsson hefur skrifað undir hjá skoska liðinu Aberdeen en þetta staðfesti Guðlaugur Tómasson umboðsmaður Þórarins við Fótbolta.net nú rétt í þessu. Samningurinn er til 6 mánaða með möguleika á 2 ára framlengingu.
Þórarinn varð í sumar bikarmeistari með Keflavík þar sem hann skoraði tvö mörk í úrslitaleiknum. Hann hefur undanfarið verið að æfa með liðum út um allan heim. Hann æfði fyrst með norska liðinu Aalesund en auk þess vildu fimm íslensk lið fá hann til sín, að Keflvíkingum meðtöldum.

Hann æfði svo ásamt félaga sínum Herði Sveinssyni með liðinu Buscan í Suður-Kóreu þar sem hann skoraði meðal annars í leik með liðinu. Næst fór hann til norska liðsins Bryne sem vildi semja við hann en hann fór fyrst til æfinga hjá Aberdeen. Þar vegnaði honum greinilega mjög vel og skrifaði í dag undir samning við liðið.

Aberdeen er í fjórða sæti Skosku úrvalsdeildarinnar og á í harðri baráttu um það þriðja við Hibernian. Eins og venjulega eru það Rangers og Celtic sem leiða deildina.

Sjá einnig:
Hin Hliðin á Þórarni
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.