Fotbolti.net
07.03.14 - 17:03
Elvar Geir Magnússon

Þóra Björg: Sterkt fyrir Freysa og hans teymi

Auglýsing
Þóra Björg Helgadóttir.

Þóra Björg Helgadóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Þóra Björg Helgadóttir markvörður lék sinn hundraðasta landsleik í dag þegar kvennalandsliðið vann flottan sigur gegn Noregi á Algarve Cup.
„Ég er ótrúlega glöð. Það er bónus að fá sigur í sínum hundraðasta leik en fyrst og fremst þurftum við á þessum sigri að halda. Það eru tímamót í gangi og breytingar á liðinu,\" sagði Þóra eftir leikinn

„Við vorum svolítið óöruggar en vinnslan var frábær og þegar íslenska hjartað er til staðar getum við gert mikið. Þetta var framar vonum. Við fengum skell í síðasta leik og þetta er sterkt fyrir Freysa (Frey Alexandersson) og hans teymi að allt heppnaðist í dag.\"

„Elín Metta var frábær og gerði nákvæmlega það sem Freysi setti upp fyrir hana. Það er ótrúlega gaman að sjá:\"

Viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.