Fotbolti.net
22.10.26 - 10:18
Kári Snorrason

Gils hraðari en allir í ensku úrvalsdeildinni

Mældist á 37.5 km/klst hraða gegn Víkingi.

Mældist á 37.5 km/klst hraða gegn Víkingi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það eru fáir sem geta haldið í við FH-inginn Gils Gíslason þegar hann tekur á sprett. Í leik FH gegn Víkingi á Kaplakrikavelli þann 16. ágúst náði Gils hámarkshraðanum 37.5 km/klst.

Til að setja það í samhengi að þá var hraðasti spretturinn sem mældist í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð 37.3 km/klst (Jackson Tchatchoua, Wolves).
Duracell kanínurnar: Þetta eru hröðustu leikmenn ensku deildarinnar
TENGT EFNI

Duracell kanínurnar: Þetta eru hröðustu leikmenn ensku deildarinnar

Þá náði Usain Bolt 37,58 km/klst meðalhraða þegar hann setti heimsmetið í 100 metra hlaupi.

Hlaupa- og sprettþjálfarinn Silja Úlfarsdóttir vakti athygli á spretttölum Gils á Instagram-síðu sinni en þau voru að kynna hlaupaþjálfun hjá Bubka Labs.

Í viðtali við Fótbolta.net í sumar var Gils spurður hvort hann væri hraðasti leikmaðurinn í Bestu. „Maður er búinn að vera að sjá á samfélagsmiðlum að Finnur Tómas sé að ná 38 kílómetra hraða. Maður veit ekki hvort það sé tímamælir eða ekki. Ég veit það ekki, maður þarf að ná einum góðum sprett og sjá hvað verður,“ svaraði FH-ingurinn léttur.

Mynd: Instagram/Siljaulfars



Á sprettinum gegn Víkingi.

Á sprettinum gegn Víkingi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.