Fotbolti.net
22.10.26 - 18:29
Ívan Guðjón Baldursson

Luis Díaz meiddist gegn Arsenal

Luis Díaz meiddist gegn Arsenal
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Kólumbíski kantmaðurinn Luis Díaz, sem skoraði þrennu í stórsigri FC Bayern gegn RB Leipzig um helgina, meiddist í miðri viku þegar Þýskalandsmeistarar Bayern tóku á móti Englandsmeisturum Arsenal.
Meistaradeildin: Rice kom Arsenal til bjargar - Aston Villa, Real Madrid og Betis með fullt hús
TENGT EFNI

Meistaradeildin: Rice kom Arsenal til bjargar - Aston Villa, Real Madrid og Betis með fullt hús

Díaz kom inn af bekknum í síðari hálfleik en þurfti að fara aftur af velli þegar hann meiddist aftan í læri.

Bayern talar um lítilvægleg meiðsli fyrir þennan 29 ára leikmann án þess að tilgreina hvenær hann mun snúa aftur til leiks. Talið er að hann verði frá í um tvær til fjórar vikur.

Díaz missir því af ýmsum leikjum, meðal annars stórleikjum gegn Borussia Dortmund og Atlético Madrid.

Bukayo Saka, lykilmaður í liði Arsenal, meiddist einnig í leiknum.
Luis Díaz meiddist gegn Arsenal
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.