Fotbolti.net
22.10.26 - 21:02
Ívan Guðjón Baldursson

Evrópudeildin: Orri fljótur að skora - Amorim tapaði í Bournemouth

Evrópudeildin: Orri fljótur að skora - Amorim tapaði í Bournemouth
Canon

Mynd: EPA

Síðustu leikjum kvöldsins í deildarkeppni Evrópudeildarinnar var að ljúka og komst Orri Steinn Óskarsson á blað í stórsigri Real Sociedad.
Orri Steinn byrjaði á bekknum og leiddu samherjar hans 0-3 í leikhlé eftir auðveldan fyrri hálfleik gegn Lilleström í Noregi. Heims- og Evrópumeistarinn Mikel Oyarzabalz gaf stoðsendingaþrennu í fyrri hálfleiknum og var skipt af velli snemma í síðari hálfleik, eftir að Norðmennirnir klúðruðu vítaspyrnu.

Orri Steinn kom inn í staðinn og gulltryggði sigur Sociedad með fjórða marki liðsins aðeins sex mínútum síðar. Liðsfélagar hans héldu áfram að skora svo lokatölur urðu 0-6 og er Sociedad með fjögur stig eftir þrjár fyrstu umferðirnar.

Ensku úrvalsdeildarfélögin Bournemouth og Crystal Palace mættu einnig til leiks. Bournemouth lagði ítalska stórveldið AC Milan að velli eftir afar umdeilda dómgæslu í fyrri hálfleik, þar sem Ítalirnir misstu mann af velli með rautt spjald og fengu tvær ódýrar vítaspyrnur dæmdar á sig.

Dæmd var hendi snemma leiks og skoraði Justin Kluivert úr vítaspyrnu á sjöundu mínútu. Boltinn fór í höndina af mjög stuttu færi eftir skalla frá Evanilson. Rétt rúmum 20 mínútum síðar fékk Mike Maignan markvörður Milan beint rautt spjald og vítaspyrnu dæmda á sig í hornspyrnu. Maignan var í stöðubaráttu við Tyler Adams sem endaði þannig að markvörðurinn ýtti í andlitið á Adams sem lét sig falla með tilþrifum.

Maignan var með augun á boltanum og virtist ekki átta sig á því að hendurnar hans væru í andlitshæð hjá Adams, enda er rúmlega 15 sentimetra hæðarmunur á leikmönnunum. Vasiolios Fotias, gríski dómari leiksins, ákvað að dæma og breytti VAR-herbergið ekki ákvörðun hans enda ekki um augljós mistök að ræða, þar sem Maignan setti hendurnar augljóslega í andlitið á andstæðingnum.

Marcus Tavernier skoraði úr vítaspyrnunni til að tvöfalda forystu Bournemouth og gerði Amine Adli endanlega út um viðureignina á lokakaflanum, eftir að gestirnir höfðu verið leikmanni færri í um það bil klukkustund. Lokatölur 3-0 og er Bournemouth með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir, á meðan Milan situr eftir með 3 stig. Rúben Amorim er við stjórnvölinn hjá Milan og var þetta hans fyrsti leikur á Englandi eftir brottreksturinn frá Manchester United í janúar.

Á sama tíma kíkti Crystal Palace í heimsókn til Tyrklands og lenti undir í uppbótartíma fyrri hálfleiks þegar Wilfred Ndidi, fyrrum leikmaður Leicester City, náði forystunni fyrir heimamenn í liði Besiktas.

Yeremy Pino og Jean-Philippe Mateta svöruðu með sitthvoru markinu í upphafi síðari hálfleiks til að snúa stöðunni við, en heimamenn jöfnuðu á 73. mínútu. Skömmu síðar misstu Tyrkirnir leikmann af velli með beint rautt spjald en ekki tókst Palace að nýta liðsmuninn, svo lokatölur urðu 2-2.

Palace er með fjögur stig eftir jafnteflið, þremur stigum á eftir Besiktas.

Í öðrum leikjum dagsins var Javier Rodríguez hetja Celta Vigo sem vann útileik gegn Skotlandsmeisturum Celtic, á meðan Lúkas Petersson sat á bekknum í frábærum 3-0 sigri Hoffenheim gegn Lyon. 35 ára Andrej Kramaric skoraði fyrsta markið og lagði hin tvö upp.

Lillestrom 0 - 6 Real Sociedad
0-1 Sergio Gomez ('25 )
0-2 Sergio Gomez ('27 )
0-3 Luka Sucic ('33 )
0-3 Thomas Olsen ('50 , Misnotað víti)
0-4 Orri Oskarsson ('64 )
0-5 Luka Sucic ('72 )
0-6 Arsen Zakharyan ('80 )

Bournemouth 3 - 0 Milan
1-0 Justin Kluivert ('7 , víti)
2-0 Marcus Tavernier ('32 , víti)
3-0 Amine Adli ('84 )
Rautt spjald: Mike Maignan, Milan ('28)

Besiktas 2 - 2 Crystal Palace
1-0 Wilfred Ndidi ('45 )
1-1 Yeremy Pino ('51 )
1-2 Jean-Philippe Mateta ('55 )
2-2 Junior Olaitan ('73 )
Rautt spjald: Umit Akdag, Besiktas ('77)

Hoffenheim 3 - 0 Lyon
1-0 Andrej Kramaric ('45 )
2-0 Adam Daghim ('49 )
3-0 Adam Hlozek ('83 )

Celtic 1 - 2 Celta
1-0 Mika Baur ('47 )
1-1 Javi Rodriguez ('68 )
1-2 Javi Rodriguez ('71 )

Omonia 1 - 4 Benfica
0-1 Loic Nego ('14 , sjálfsmark)
1-1 Andronikos Kakoullis ('42 )
1-2 Vangelis Pavlidis ('49 )
1-3 Fredrik Aursnes ('76 )
1-4 Gianluca Prestianni ('85 )

Plzen 1 - 2 Levski Sofia
0-1 Everton Bala ('44 )
1-1 Christophe Kabongo ('62 )
1-2 Reinaldo ('66 )

Jagiellonia 0 - 3 Anderlecht
0-1 Mihajlo Cvetkovic ('21 )
0-2 Marten Winkler ('72 )
0-3 Jayden Onia Seke ('80 )

Celje 2 - 2 RB Salzburg
0-1 Sota Kitano ('9 )
0-2 Jesper Lindstrom ('46 )
1-2 Blaz Kramer ('50 )
2-2 Armandas Kucys ('90 )

Olympiakos 1 - 0 Sparta Prag
1-0 Armando Gonzalez ('78 )
Evrópudeildin: Orri fljótur að skora - Amorim tapaði í Bournemouth
Canon

Mynd: EPA

Evrópudeildin: Orri fljótur að skora - Amorim tapaði í Bournemouth
Canon

Mynd: EPA

Evrópudeildin: Orri fljótur að skora - Amorim tapaði í Bournemouth
Canon

Mynd: EPA

Evrópudeildin: Orri fljótur að skora - Amorim tapaði í Bournemouth
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.