Fotbolti.net
22.10.26 - 20:22
Ívan Guðjón Baldursson

Jóhann Birnir og Davíð áfram með ÍR (Staðfest)

Jóhann Birnir og Davíð áfram með ÍR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Jóhann Birnir Guðmundsson og Davíð Örvar Ólafsson munu áfram þjálfa ÍR eftir að hafa stýrt liðinu í 7. sæti Lengjudeildarinnar í sumar. Þeir gera tveggja ára samninga við félagið.
Jóhann Birnir er aðalþjálfari liðsins og hefur verið við stjórnvölinn í fjögur ár. Hann verður því langlífasti þjálfari Lengjudeildarinnar á næsta ári.

Undir hans stjórn fór ÍR upp úr 2. deild og festi sig vel í sessi í Lengjudeildinni. Breiðhyltingar fóru í umspil um sæti í Bestu deildinni fyrir tveimur árum en hefur ekki tekist að endurtaka leikinn síðan.

„Má segja að það hefur gífurlega margt jákvætt gerst á þessum fjórum árum eftir komu Jóa í ÍR. Jóhann Birnir hefur ætíð haldið í mikla tryggð við ÍR og er næst leikjahæsti þjálfari í sögu knattspyrnudeildarinnar á eftir Arnari Þór Valssyni," segir meðal annars í tilkynningu frá ÍR.

Davíð Örvar heldur áfram sem aðstoðarþjálfari eftir tvö ár í starfinu. Davíð er sonur Ólafs Davíðs Jóhannessonar, sem er best þekktur sem Óli Jó.

„Það eru ekki til betri menn í verkefnið en Jóhann Birnir og Davíð Örvar. Stjórn knattspyrnudeildar ÍR fagnar því þessum fréttum líkt og allir aðrir ÍR-ingar gera."

Jóhann Birnir og Davíð áfram með ÍR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.