Lék með Þór en þarf að vona að liðið vinni ekki - „Engin óskastaða fyrir Akureyringa"

Ég veit og vona að við mætum almennilega og klárum þann leik

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

KA þarf að fá fleiri stig en Þór á laugardag til að halda sæti sínu í deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hefur átt gott tímabil, skorað fimm mörk og lagt upp eitt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kom í KA frá Þór sumarið 2021.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Ég er bara bjartsýnn, það er einhvern veginn í mínu eðlisfari að vera bara jákvæður og horfa þannig á hlutina

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég veit og vona að við mætum almennilega og klárum þann leik

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
KA tekur á móti ÍBV á laugardag og á sama tíma heimsækja grannarnir í Þór lið FH. Þór er með eins stigs forskot á KA.
„Ég er tiltölulega bjartsýnn. Maður verður bara að trúa á þessa FH-inga og trúa því og treysta að þeir geri þetta almennilega. Ég hef alveg trú á því að þeir eigi að taka allavegana stig á heimavelli á móti Þór, en maður hefur kannski svona smá áhyggjur af því sem þeir hafa að keppa um. Maður vonar náttúrulega bara að þeir geri þetta fagmannlega. Ég er bara bjartsýnn, það er einhvern veginn í mínu eðlisfari að vera bara jákvæður og horfa þannig á hlutina."
Fyrst og fremst náttúrulega snýst þetta um að þið klárið ykkar verkefni?
„Já, að sjálfsögðu, það er náttúrulega bara númer eitt, tvö og þrjú. Við getum lengi talað um að treysta á aðra og eitthvað. Auðvitað væri langbest að geta bara treyst á sjálfan sig og að sjálfsögðu var það planið. Það fór kannski aðeins úrskeiðis og núna þurfum við að hluta til að treysta á aðra. En það hjálpar okkur ekkert að treysta á FH ef við ætlum ekki að klára okkar verkefni sjálfir. Við bara verðum að einbeita okkur að okkur og síðan verður bara hitt að koma í ljós."
Svekktir með síðasta leik
Hvernig var andinn eftir leikinn á móti Val?
„Auðvitað voru menn bara svekktir, held að það sé svona orðið sem að lýsir þessu best. Mér fannst við geta verið í betri stöðu í hálfleik en við vorum. Hefðum getað verið búnir að nýta okkur þau færi og annað sem við fengum betur. Lendum síðan snemma í seinni hálfleik undir, búið að hvessa mikið, bætti mikið í vindinn í kringum hálfleikinn. Við þurftum að sækja markið og það einhvern veginn spilaðist ekki nógu vel. Aðstæður voru þannig að við kannski náðum ekki alveg að spila okkar leik en ég held samt að menn voru nú að leggja sig fram. Þetta var svona fyrst og fremst svekkelsi að þetta hafi farið svona. Úr því þá verðum við bara að halda áfram, hafa trú á þessu og og gera okkar besta."
Sem fyrrverandi leikmaður Þórs, er skrýtið að þetta sé barátta á milli Þórs og KA í lokaumferðinni?
„Já, já, ég held að það sé svo sem líka bara óháð því, bara með því að vera Akureyringur. Við þekkjumst vel á þessir strákar, alls konar tengsl: skóli, fótbolti, vinna og ýmislegt. Ég held að þetta sé alveg skrýtið og engin óskastaða fyrir Akureyringa. Það er auðvitað mikil og hörð samkeppni og eins og við höfum séð í þessum leikjum sem hafa verið á milli félaganna í sumar, þetta hafi verið skemmtilegir leikir, gert mikið úr þessu og bara skemmtilegt að spila þessa leiki."
„Ég held að það sé eitthvað sem að kannski svona menn horfi líka í að annað liðið þarf því miður að fara niður. Ég held að menn horfi í að fá ekki að njóta þess áfram, allavega ekki á næsta ári, að liðin spili í sömu deild."
„Auðvitað er þetta ekki óskastaða. Og eins og ég sagði við þig bara rétt þegar við hittumst áðan þá væri nú kannski meiri draumur ef við værum annaðhvort að keppa um titilinn eða Evrópusæti; að það væri ekki þessi staða."
Pressulausir Eyjamenn
Þið eruð að fara mæta Eyjamönnum. Þeir unnu í síðasta leik og koma pressulausir inn í leikinn. Eruð þið mikið að spá í þeim fyrir leikinn?
„Aðalfókusinn á að vera á sjálfan sig og hvað við getum gert. En auðvitað getur það hjálpað að vera aðeins búinn að pæla í andstæðingnum. Ég ætla ekkert að taka af Eyjaliðinu Þeir hafa kannski svona seinni part sumars hafa ekki verið upp á sitt besta, en mér fannst þeir á parti í sumar spila þannig bolta að þeir ættu ekkert endilega að vera neðstir núna og fallnir fyrstir. Þeir fengu ekki nægilega mörg stig og þú færð engin verðlaun fyrir að geta spilað boltanum upp eða þess háttar."
„Þeir eru alveg pressulausir og ég veit ekkert hvernig þeir koma stemmdir, þeir voru á Akureyri fyrir einhverjum tveim vikum að spila á móti Þór og allt búið. Ég held að þeir komi bara til að njóta þess að spila síðasta leikinn í deildinni áður en þeir fara niður. Ég veit og vona að við mætum almennilega og klárum þann leik."
Vonar að KA-menn mæti og styðji við liðið
Hversu mikið skiptir máli að fá öflugan stuðning úr stúkunni?
„Stuðningurinn er alltaf mikilvægur, hvort sem það er núna eða á öðrum tímapunkti. Auðvitað er það oft þannig að ef það gengur betur þá er stuðningurinn meiri, dragast fleiri og fleiri inn í. Ég vona að KA-fólkið sjái sér fært um að mæta um helgina og styðja okkur í að klára okkar verkefni. Ég er svo bjartsýnn á að hitt fari bara vel fyrir okkur líka," segir Jakob Snær.

KA þarf að fá fleiri stig en Þór á laugardag til að halda sæti sínu í deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hefur átt gott tímabil, skorað fimm mörk og lagt upp eitt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kom í KA frá Þór sumarið 2021.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Ég er bara bjartsýnn, það er einhvern veginn í mínu eðlisfari að vera bara jákvæður og horfa þannig á hlutina

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
