22.10.26 - 18:06
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið kvöldsins: Bournemouth með sterkt lið gegn Milan

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: EPA
Það er mikið fjör í Evrópu í kvöld þegar átján leikir hefjast samtímis í Evrópudeildinni og Sambandsdeildinni.
Tvö ensk úrvalsdeildarlið mæta til leiks ásamt nokkrum Íslendingaliðum sem verður gaman að fylgjast með.
Crystal Palace mætir til leiks með sterkt byrjunarlið til Tyrklands þar sem Leandro Trossard, Wilfred Ndidi og félagar í liði Besiktas bíða spenntir. Dusan Vlahovic byrjar á bekknum hjá Besiktas á meðan Ismaïla Sarr og Ben Chilwell eru meðal varamanna í liði gestanna.
Rayan er þá meðal varamanna í meiðslahrjáðu liði Bournemouth sem fær AC Milan í heimsókn. Heimamenn mæta til leiks með mjög sterkt byrjunarlið á meðan Rúben Amorim gerir mikið af breytingum á byrjunarliði Milan á milli leikja þar sem hann vill leggja áherslu á ítölsku deildina.
Orri Steinn Óskarsson byrjar þá á bekknum hjá Real Sociedad sem heimsækir Lilleström til Noregs á meðan Elías Rafn Ólafsson er ekki í hóp hjá Midtjylland vegna veikinda.
Kristian Nökkvi Hlynsson er á bekknum hjá Twente sem heimsækir Lincoln Red Imps til Gíbraltar á meðan Mikael Neville Anderson og Tómas Óli Kristjánsson eru fjarri vegna meiðsla er Århus tekur á móti Egnatia frá Albaníu.
Að lokum situr Lúkas Jóhannes Blöndal Petersson, markvörður U21 landsliðs Íslands, á bekknum hjá Hoffenheim sem tekur á móti Lyon.
Besiktas: Nubel, Akdag, Bulut, Djalo, Ouattara, Yilmaz, Ndidi, Miretti, Fakili, Hyeon-gyu, Trossard
Crystal Palace: Benitez, Richards, Disasi, Canvot, Khalaili, Mitchell, Wharton, Kamada, McNeil, Pino, Mateta
Bournemouth: Di Gregorio, Diakite, Hill, Silva, Truffert, Adams, Christie, Tavernier, Doak, Kluivert, Evanilson
AC Milan: Maignan, Tomori, De Winter, Pavlovic, Hutchinson, Estupinan, Jashari, Musah, Loftus-Cheek, Moreira, Cisse
Real Sociedad: Marrero, Zubeldia, Sarr, Martin, Gomez, Gorrotxategi, Soler, Kubo, Guedes, Sucic, Oyarzabal
Hoffenheim: Baumann, Coufal, Hranac, Kabak, Rots, Conte, Avdullahu, Prass, Kramaric, Lemperle, Daghim