22.10.26 - 11:27
Kári Snorrason
Betra fyrir FH að tapa gegn Þór?

Frá viðureign FH og Þórs fyrr á tímabilinu.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

KA þarf að treysta á að Þór tapi stigum í Kaplakrika.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Lokaumferðin hefst klukkan 14.00 á laugardaginn.

FH tekur á móti Þór á Kaplakrikavelli næstkomandi laugardag í lokaumferð Bestu deildarinnar.
Þór er í harðri fallbaráttu við erkifjendurna í KA en örlögin eru í þeirra höndum. Með sigri í Kaplakrika tryggir liðið sér áframhaldandi sæti í Bestu deildinni á næsta tímabili.
Í Innkastinu var velt því fyrir sér hvernig FH-ingar myndu mæta stefndir til leiks gegn Þórsurum og hvort það væri betra fyrir FH að tapa og þar með fella KA.

TENGT EFNI
Annað Akureyrarliðið fellur: Tölfræðin segir þessa sögu
„Ég vil ekki trúa því. Ég held að einstaklingar í keppnisíþrótt horfi frekar í hina áttina. Að þeir hafi ekki stjarnfræðileg áhrif á hverjir falla eða því um líkt. Jói Kalli er þvílíkur keppnismaður. Ég trúi ekki öðru en að ÍBV og FH klári sína leiki almennilega,“ sagði Haukur Páll Sigurðsson og Elvar Geir tók til máls.
„Ég ætla ekkert ljúga því, ef ég væri Jói Kalli þá væri ég búinn að hugsa þetta. Er ekki betra að losna við KA og vera áfram með Þór í deildinni?,“ sagði Elvar.
„Það er stutt í skítinn hjá FH og hefur verið það undanfarin ár. Ef þeir eiga lélegt tímabil á næsta ári hvort vilja þeir berjast við KA eða Þór í fallbaráttunni?,“ bætti Valur Gunnarsson við.