Stuðningsmenn ÍA um framtíð Lárusar Orra - „Kominn á endastöð“

Óvíst er hvort Lárus Orri stýri ÍA á næstu leiktíð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heimir Guðjónsson hefur verið sterklega orðaður við ÍA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eggert Herbertsson, formaður Fótboltadeildar ÍA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sverrir Mar Smárason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í 4. sæti deildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sverrir sér Gylfa Tryggvason fyrir sér sem góðan aðstoðarmann Heimis.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Spáð 4. sæti fyrir mót.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elfa Björk heldur utan um skemmtilega tölfræði á Twitter, þar á meðal 'Lárusar Orra-deildina'.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Pétur Pétursson hefur verið nefndur sem mögulegur kostur.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

'Hann hefur vissulega náð að færa liðið áfram, en að sama skapi var liðið styrkt með afgerandi hætti.'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tímabilið verið sveiflukennt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lúðvík Gunnars hefur gert góða hluti með U21 landsliðið.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Gísli Eyjólfsson gekk í raðir ÍA fyrir tímabil.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Blésu í herlúðra fyrir tímabil.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Þór Hauksson var látinn fara á síðasta tímabili.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

,,Mig hefur alltaf langað til þess að sjá Sigga Jóns taka við liðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Eiður Smári hefur verið nefndur sem mögulegur kostur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Heiðar er búsettur á Skaganum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

,,Ef leiðir skilja núna er ég þó viss um að stjóratíð Lárusar Orra verði minnst í jákvæðu ljósi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óvíst er hvort Lárus Orri stýri ÍA á næstu leiktíð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Liðið situr um þessar mundir í 4. sæti deildarinnar nú þegar ein umferð er eftir af mótinu.
Eggert Herbertsson, formaður fótboltadeildar ÍA, var á dögunum spurður út í hvort Lárus Orri myndi stýra liðinu áfram á næsta tímabili og svaraði hann hvorki játandi eða neitandi - einungis að hann væri með samning út næsta tímabil.
Heimir Guðjónsson hefur verið sterklega orðaður við þjálfarasætið uppi á Skipaskaga skyldi félagið ráðast í þjálfarabreytingar. Spurning er hvort Fylkir leyfi honum að yfirgefa Árbæinn, ÍA þyrfti í hið minnsta að greiða Fylki væna summu fyrir Heimi.
Fótbolti.net hafði samband við nokkra stuðningsmenn ÍA og lagði fyrir þá eftirfarandi fjórar spurningar.
1) Hvernig gerir þú upp tímabilið?
2) Finnst þér Lárus Orri eiga að fá að halda áfram með liðið?
3) Væri ósanngjarnt að láta Lárus fara?
4) Hvern myndiru vilja sjá taka við liðinu skyldi félagið ráðast í þjálfarabreytingar?
Sverrir Mar Smárason
1) Mér finnst þetta heilt yfir vera vonbrigði miðað við hvernig blásið var í lúðra síðasta vetur. Markmiðið var alveg klárlega að keppa um evrópu og líklega bikarinn. Það hvarf bæði snemma og þar af leiðandi vonbrigði þrátt fyrir að enda í 4.sæti.
Þeir náðu að snúa þessu aðeins sér í vil þegar leið á eftir erfiðan kafla og verða að fá ákveðið credit fyrir það. Mér finnst félagið ekki alveg vita hvað það vill vera. Ætlum við að byggja á ungum og efnilegum strákum, eiga þeir að vera heimamenn eða aðkeyptir eða ætlum við kannski að reyna að verða íslandsmeistarar.
Fyrir ári síðan var hamrað á því að eyða ekki of miklu og reyna að búa til sjálfbærni. Svo voru teknir inn 3 rándýrir og rígfullorðnir leikmenn. Fer ekki alveg saman.
2) Ég kann mjög vel við (Lárus) Orra og fékk að kynnast honum aðeins í fyrra. Hann gerði mjög vel eftir að hafa komið inn á slæmum tíma í fyrra, keyrði upp stemningu og liðið hélt sér uppi.
Utan frá sýnist mér þetta verkefni hins vegar komið á endastöð og tími til að skoða hvað er í boði. Það þarf hins vegar að setja upp eitthvað langtímaplan fyrir ÍA svo saga þessarar aldar endurtaki sig ekki og liðið falli aftur. Orri gæti alveg stýrt því plani næstu ár ef planið er gott.
3) Það má alveg færa rök fyrir því að það sé ósanngjarnt. Ef liðið endar í 4.sæti er það á blaði, þegar litið er til baka, frábær árangur. Árið 2024 var liðið í baráttu um Evrópusæti þangað til í lokaleik, það er í mínum huga betri árangur þrátt fyrir að sætið sé hærra núna. Baráttan var engin í ár.
4) Ég er mesti Jón Þór Hauks maður á landinu. Vildi ekki sjá hann rekinn og hefði viljað sjá hann snúa hlutunum við í fyrra. Það er hins vegar langsótt óskhyggja að hann taki við núna. Ég hef heyrt verri hugmyndir en að Heimir Guðjóns taki við þessu. Hann hefur sýnt að hann getur haldið utan um alls konar verkefni.
Ég væri til í að fá hann til þess að stýra þessu og fá einn ungan og graðan með honum sem vinnur alla nútíma vinnuna. Þar er ég að horfa í Gylfa Tryggvason hjá Grindavík/Njarðvík kvennamegin. Ungur og efnilegur, sýnt að hann getur gert þetta allt saman.
Elfa Björk Sigurjónsdóttir
1) Ég var með væntingar um Evrópusæti eða a.m.k. Evrópubaráttu. Ég sagði í viðtali við ykkur fyrir mót að ég vildi sjá okkur í fjórða sætinu og með bikarmeistaratitil. Við höfum núna tækifæri á að enda í fjórða sætinu. Þrátt fyrir að það gefi ekki farmiða í Evrópukeppni í ár þá væri það besta lokastaða sem við höfum náð í deildinni í ansi mörg ár.
Með sigri á Keflavík í lokaumferðinni (alls ekki gefið þar sem við höfum tapað þeim leikjum mest sannfærandi af öllum á tímablinu) myndum við enda í 40 stigum, sem er mesti stigafjöldi sem við hefðum náð í 30 ár. Það hafa líka verið tekin skref uppávið frá í fyrra, þá náðum við t.d. aðeins í eitt stig í leikjum þar sem við lentum undir – það er meiri seigla í hópnum núna.
En m.v. hvernig tímabilið hefur spilast, t.d. hversu döpur þessi lið sem hafa raðað sér í efstu sætin mörg síðustu ár eins og Valur, Stjarnan og jafnvel Breiðablik hafa verið þá voru alvöru tækifæri í þessu móti, tækifæri sem við nýttum ekki nógu vel. Ýmist vorum við að spila vel en ekki loka leikjum en líka að eiga hauskúpuleiki inn á milli (sem var annað sem ég óskaði eftir að sjá ekki gerast á þessu tímabili).
Niðurstaðan er að við erum alltof langt frá því sem við viljum vera að keppa um. Við náðum inní efri hlutann, en með langversta árangur innbyrðis gegn hinum liðunum sem eru þar með okkur. Við erum það langt frá þessu að við erum 9 stigum á eftir Fram sem eru í næsta sæti fyrir ofan okkur. Það eru rétt tæpir 2 mánuðir frá síðasta sigurleik Fram.
2) Ég er fegin að þessi ákvörðun er ekki í mínum höndum. Ég hef haldið utanum Lárusar-Orra-deildina á Twitter sem er stigasöfnun allra liðanna í deildinni per leik og þar er ÍA í 4. sæti. En vissulega hefur þetta verið mjög kaflaskipt. Eftir útileik í Keflavík hefði ég verið til í að skutla honum norður sjálf. Eftir það hafa bara Víkingar staðið sig betur í stigasöfnuninni, svo hann á hrós skilið fyrir þann viðsnúning. Ef það á að skipta þá þarf væntanlega nokkuð mikið til, þarf þá að vera einhver fáanlegur sem væri augljóslega betri kostur.
Ákvörðun stjórnar hlýtur að taka aðallega mið af þremur spurningum. Hefur árangurinn hingað til staðist væntingar? Telja þau að Lárus Orri hafi það sem þarf til þess að leiða næstu skref frammávið? Er einhver þjálfari í sigtinu sem þau trúa að sé betur til þess fallinn að ná því besta útúr liðinu?
3) Þjálfarabransinn er ansi harður. Líftími í starfi er nú sjaldnast mjög mörg ár. Það er mikill Skagamaður í Lárusi Orra og við virðum það öll og viljum sjá að honum gangi sem best, sem og liðinu. Hann hefur vissulega náð að færa liðið áfram, en að sama skapi var liðið styrkt með meira afgerandi hætti heldur en hefur nokkurntíman verið gert í þessi 12 ár sem ég hef búið hér á Skaganum.
Það sem mér hefur kannski fundist ekki hafa tekist nógu vel er að venja menn af því að vera “litla” liðið í leikjum. Stundum þarf að minna þá meira á hvað er gaman í fótbolta. Stundum, sérstaklega þegar illa gengur, lítur út fyrir að það sé skortur á leiðtogum í hópnum, svona utanfrá séð.
4) Það er ekki annað hægt en að bera ákveðna virðingu fyrir Heimi Guðjóns og þeim árangri sem hann hefur náð með sín lið. Ég er þó ekki viss um að hann sé besti kosturinn fyrir ÍA í dag.
Mig hefur alltaf langað að sjá Sigga Jóns taka við liðinu, enda er hann líklega svo gott sem eini Skagamaðurinn í þjálfun sem hefur ekki spreytt sig á starfinu. Eiður Smári væri líka spennandi kostur og jafnvel þeir tveir saman, væri það ekki eitthvað?
Svo er spurning hvort Lúlli Gunnars taki þetta bara ef KSÍ hefur ekki vit á því að festa hann í þessu U21 árs verkefni.
Ýmsum hefur líka fundist vel tímabært að fá Pétur Pétursson aftur heim á Skagann.
Hver sem verður við stjórnvölinn mæti ég með læti í stúkuna þegar nýtt tímabil fer af stað og vona það besta! Ég hef mikla trú á þessum strákum og er viss um að þeir eiga inni aukagír eða tvo…
Hilmar Halldórsson
1) Tímabilið hefur heilt yfir verið ágætt myndi ég segja. Liðið byrjaði ekki vel og það var brekka um mitt sumar þegar við töpuðum 5 í röð. Liðið svaraði því hins vegar vel og hefur bara tapað núna einum af síðustu ellefu leikjum.
Vissulega er mikilvægt fyrir ÍA að festa sig almennilega í deildinni eftir mikið upp og niður síðustu ár en markmiðið var að ná evrópu sæti þannig þetta er smá vonbrigði myndi ég segja miðað við allt sem er sett í þetta.
2) Mér finnst Lárus Orri hafa gert bara nokkuð vel með ÍA, hann tekur við liðinu í kjallaranum, bjargar liðinu frá falli og er í góðu færi á að enda með liðið í 4. sæti sem væri besti árangur liðsins í langan tíma.
Stóra spurningin núna hlýtur að vera sú, hvort að menn sjái núverandi þjálfara geti komist lengra með liðið. Persónulega væri ég til í að sjá breytingar gerðar, með það fyrir augum að koma liðinu á næsta level.
3) Já, á einhvern hátt væri það kannski ósanngjarnt að láta hann fara. Eins og ég segi hann hefur staðið sig vel og hans stjórnartíð verður minnst á jákvæðan hátt ef hann myndi hætta núna.
4) Heimir Guðjóns væri klárt upgrade fyrir mér. Hann er með þetta “know how”, unnið 11 titla á sínum ferli, verið í leiknum í 30 ár. Ég held að hann myndi smellpassa við þetta ÍA project sem er í gangi.
Hjá ÍA ríkir mikill metnaður og aðstaðan er glæsileg og fer bara batnandi en draumurinn hjá ÍA er að komast í evrópu og keppast um þessa titla og held ég að Heimir gæti hjálpað okkur með það.
Lúlli Gunn er líka spennandi “shout”, hann er einn af efnilegustu þjálfurum landsins, hann mun taka við ÍA í framtíðinni en finnst líklegt að hann ætli sér fyrst að koma U21 á lokamót.
Emil Kristmann Sævarsson
1) Ég myndi meta árangur tímabilsins mjög góðan. 4.sæti er flott miðað við þann hóp sem við vorum að vinna með og meiðsli sem komu upp á tímabilinu. (5.sæti væri á pari við væntingar og ekkert til þess að hrópa húrra fyrir.)
2) Það er stór ákvörðun sem stjórn KFÍA stendur frami fyrir. Árangurinn verið góður þrátt fyrir erfiða byrjun og hrikalegt gengi frá miðjum júní fram að 5-1 sigrinum á Stjörnunni heima. Þá voru menn í stúkunni farnir að tala um framtíð Orra. Náum svo jafntefli heima við Víking og vinnum Þór og ÍBV.
3) Þjálfarar eru alltaf í vonlausri stöðu og ekkert sem heitir ósanngjarnt í þessu. Stjórnin verður að horfa fram á veginn til næstu 3-5 ára amk. og finna út úr því hvað er best í stöðunni fyrir ÍA.
4) Ég myndi vilja sjá Gunnar Heiðar Þorvaldsson fá tækifærið.
Snorri Kristleifsson
1) Miðað við það sem lagt var í leikmannahópinn, starfslið og umgjörð eru það vonbrigði að liðið hafi aldrei verið í baráttu um Evrópusæti.
2) Mér finnst eðlilegt að félagið líti í kringum sig og skoði hvaða möguleikar séu í boði.
3) Staðan á liðinu um mitt sumar var þannig að réttlætanlegt hefði verið að ráðast í þjálfarabreytingar. Tímabilið hefur verið tíðindalítið og takmörkuð stemning myndast í kringum liðið.
Ef leiðir skilja núna er ég þó viss um að stjóratíð Lárusar Orra verði minnst í jákvæðu ljósi. Hann reyndist nákvæmlega sá þjálfari sem liðið þurfti á að halda í björguninni 2025 og skilar því í efri hlutann í ár. Hvort hann sé rétti maðurinn til að leiða liðið á næsta stig er stóra spurningin sem stjórnarmenn ÍA standa frammi fyrir núna. Þar er ég sjálfur efins.
4) Af raunhæfum kostum líst mér vel á Heimi Guðjónsson. Hjá ÍA fengi hann kjörinn vettvang til að undirstrika að hann sé ennþá meðal bestu þjálfara landsins. Heimir kæmi með sigurhefð inn í félagið á ný, en seinasti þjálfari ÍA með titla á bakinu var Guðjón Þórðarson árið 2008.

Heimir Guðjónsson hefur verið sterklega orðaður við ÍA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eggert Herbertsson, formaður Fótboltadeildar ÍA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sverrir Mar Smárason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í 4. sæti deildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sverrir sér Gylfa Tryggvason fyrir sér sem góðan aðstoðarmann Heimis.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Spáð 4. sæti fyrir mót.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elfa Björk heldur utan um skemmtilega tölfræði á Twitter, þar á meðal 'Lárusar Orra-deildina'.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Pétur Pétursson hefur verið nefndur sem mögulegur kostur.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

'Hann hefur vissulega náð að færa liðið áfram, en að sama skapi var liðið styrkt með afgerandi hætti.'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tímabilið verið sveiflukennt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lúðvík Gunnars hefur gert góða hluti með U21 landsliðið.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Gísli Eyjólfsson gekk í raðir ÍA fyrir tímabil.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Blésu í herlúðra fyrir tímabil.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Þór Hauksson var látinn fara á síðasta tímabili.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

,,Mig hefur alltaf langað til þess að sjá Sigga Jóns taka við liðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Eiður Smári hefur verið nefndur sem mögulegur kostur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Heiðar er búsettur á Skaganum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

,,Ef leiðir skilja núna er ég þó viss um að stjóratíð Lárusar Orra verði minnst í jákvæðu ljósi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
