Fotbolti.net
07.04.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson

Ólafur Gottskálksson til Keflavíkur (Staðfest)

Ólafur Gottskálksson til Keflavíkur (Staðfest)
Canon
Keflavík hefur fengið markvörðinn Ólaf Gottskálksson frá Grindavík. Ólafur sem að er 36 ára var samningsbundinn Grindavík til ársloka 2005 en fékk sig lausan undan samningi þeirra. Keflvíkingar hafa verið að leita sér að markmanni til að fylla skarð Ómar Jóhannsson sem að er farinn til Svíþjóðar.
Keflvíkingar fengu hinn danska Morten Olesen og hinn þýska, Lutz Pfannenstiel til reynslu í vetur en nú virðist þeir vera búnir að finna markvörð en auk Ólafs hafa þeir ungan markvörð, Magnús Þormar.

Ólafur lék á sínum tíma með skoska liðinu Hibernian en hann gekk til liðs við Grindavík í febrúar árið 2003 frá enska liðinu Brentford. Hann lék tíu leiki með Grindavík í Landsbankadeildinni síðastliðið sumar en missti af síðari hluta mótsins vegna meiðsla.

Kappinn hefur leikið níu A-landsleiki sjö U-21 árs leiki og einn U-19 ára landsleik með Íslendingum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.