Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 07. apríl 2021 22:23
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mbappe: Elska svona leiki
Mynd: Getty Images
„Ég elska að spila gegn bestu leikmönnum í heimi og Manuel Neuer er einn besti markvörður sögunnar. Ég fann ekki fyrir pressu. Mér tókst ekki að skora gegn honum í úrslitaleiknum og vona að ég geti skorað aftur gegn honum," sagði Kylian Mbappe, leikmaður PSG, eftir 2-3 útisigur gegn Bayern í Meistaradeildinni.

„Ég elska að spila svona leiki. Þeir hafa ekkert alltaf farið á þann veg sem ég hefði óskað og mögulega munu þeir ekki fara þá leið í framtíðinni, ég var ekki hér til að fela mig. Ég elska að spila svona leiki og skipta sköpum."

„Þetta var erfiður leikur gegn besta liði Evrópu núna. Við spiluðum vel sem lið en þetta var bara fyrri leikurinn,"
sagði Mbappe.

Mbappe skoraði tvö mörk í leiknum og er þetta fyrsta tap Hansi Flick sem stjóri Bayern Munchen í Meistaradeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner