Fotbolti.net
07.04.26 - 10:00
Kári Snorrason

„Held að Markús Páll geti orðið bestu kaupin af þeim öllum“

„Held að Markús Páll geti orðið bestu kaupin af þeim öllum“
Canon

Mynd: ÍA

Skagamenn hafa blásið í herlúðra fyrir komandi tímabil og styrkt lið sitt verulega með komu Guðmundar Þórarinssonar, Gísla Eyjólfssonar, Böðvars Böðvarssonar og Markúsar Páls Ellertssonar.

Jón Þór Hauksson, fyrrverandi þjálfari liðsins, var gestur í Besta spjallinu hér á Fótbolta.net nýverið og sagði Markús Pál Ellertsson geta verið bestu kaupin af þeim öllum.
Markús Páll gerir fjögurra ára samning við ÍA (Staðfest)
TENGT EFNI

Markús Páll gerir fjögurra ára samning við ÍA (Staðfest)

„Þetta er virkilega öflugur liðsstyrkur sem þeir hafa fengið. Gríðarlega skemmtilegir og góðir spilarar. Það hins vegar hefur verið með Skagann eins og fleiri lið í vetur að það hefur ekkert gengið sérstaklega vel hjá þeim á undirbúningstímabilinu. Ég veit það að menn hafa áhyggjur af spilamennsku liðsins.“

„Það er spurning hvernig menn smella inn í þetta á lokametrunum og hvernig þeir mæta í mótið. Það er ekki spurning að liðsstyrkurinn sem hefur komið er úr efstu hillu,“
segir Jón og heldur áfram.

„Ég held líka að Markús Páll geti orðið bestu kaupin af þeim öllum. Sá strákur er gríðarlega spennandi og ég er gríðarlega spenntur fyrir því að sjá hann í sumar, “ segir Jón Þór en Markús gekk til liðs við ÍA fyrir mánuði síðan eftir að hafa rift samningi sínum við Triestina á Ítalíu.

Markús er sóknarmaður fæddur árið 2006 og er uppalinn hjá Fram. Hann er yngri bróðir landsliðsmannsins Mikaels Egils sem spilar með Genoa á Ítalíu.
„Held að Markús Páll geti orðið bestu kaupin af þeim öllum“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta spjallið: Damir, Jón Þór og Gummi Ben rýna í liðin

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.