Arnór Gauti Ragnarsson var í byrjunarliði Hönefoss sem mætti Spjelkavik í norska boltanum í dag.
Hann kom liðinu yfir með marki á 26. mínútu en þetta er þriðja markið hans eftir fimm umferðir. Spjeklavik jafnaði hins vegar metin í uppbótartíma og Hönefoss er aðeins með fjögur stig eftir þessar fimm umferðir.
Alex Þór Hauksson spilaði allan leikinn fyrir Östers í 2-0 sigri á Norrby í næst efstu deild í Svíþjóð. Liðið er með 13 stig eftir sex umferðir í 2. sæti.
Esbjerg er í erfiðri stöðu eftir 2-1 tap gegn Köge í næst efstu deild í Danmörku. Liðið er fjórum stigum frá öruggu sæti þegar fjórar umferðir eru eftir. Ísak Óli Ólafsson sat allan tíman á varamannabekk Esbjerg í dag.
Athugasemdir