Barcelona langar í Haaland - Tonali og Fernandes á blaði Man Utd - Klopp gæti tekið við Þýskalandi
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
   lau 07. maí 2022 19:09
Sverrir Örn Einarsson
Hemmi Hreiðars: Þetta var fúlt djöfull fúlt
Hermann Hreiðarsson
Hermann Hreiðarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var fúlt, djöfull fúlt. En að sama skapi þá komum við hrikalega sterkir inn í seinni hálfleik. Þrátt fyrir að vera manni fleiri þá er það ekkert alltaf einfalt en við settum þá undir pressu frá fyrstu mínútu í seinni hálfleik og komumst yfir svo það er hundfúlt að labba ekki héðan með þrjú stig.“
Sagði svekktur þjálfari ÍBV Hermann Hreiðarsson eftir 3-3 jafntefli hans manna gegn Keflavík fyrr í dag þar sem Keflavík leiddi 2-0 í hálfleik.

Lestu um leikinn: Keflavík 3 -  3 ÍBV

Keflvíkingar voru sterkari aðilinn framan af fyrri hálfleik allt þar til þeir misstu fyrirliða sinn af velli með rautt spjald og leiddu eins og áður sagði 2-0 í hálfleik. Hvað var að klikka hjá Eyjamönnum?

„Við bara spiluðum þetta upp í hendurnar á þeim. Vorum að tapa boltanum á vondum stöðum trekk í trekk. Í fyrsta markinu töpum við honum inn í vítateig og ef þú ert að bjóða upp á svoleiðis þá er þér refsað.“

Breki Ómarsson varð fyrir meiðslum í fyrri hálfleik og fór af velli eftir tæplega 20 mínútna leik. Arnar Breki Gunnarsson kom inn á í hans stað en var tekinn svo af velli í hálfleik. Taktísk breyting?

„Já en hann var líka eitthvað tæpur sem kannski einfaldaði það. En vissulega fórum við í taktískar breytingar þarna og það var bara eitthvað sem þurfti að gera og líka að hann var aðeins tæpur. “

Sagði Hemmi en allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner