Fotbolti.net
10.08.26 - 23:02
Helgi Inguson

Kennie sáttur með frammistöðuna: Karakter í hópnum

Auglýsing
Kennie Choppart skoraði tvö mörk í dag

Kennie Choppart skoraði tvö mörk í dag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram tapaði 2-5 gegn KR á Lambhagavellinum í kvöld. Fótbolti.net ræddi við Kennie Choppart, leikmann Fram, eftir leik.
Lestu um leikinn: Fram 2 - 5 KR
„Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum. Þegar maður er lentur 3-0 undir gegn KR þá er þetta erfitt. Við komumst smá tilbaka, minnkum muninn í 3-2. Svo fengum við tækifæri til þess að jafna en það gekk ekki," sagði Kennie um gang leiksins.

„Þetta er ekki í fyrsta skipti sem við komum tilbaka, við erum með svona hóp í Fram. Það er karakter í hópnum. Eins og ég segi ef við hefðum jafnað metin þá hefðum við kannski unnið. En við náðum því ekki og þeir skora tvö."

Kennie var ánægður með frammistöðu liðsins þrátt fyrir tapið, liðið mætti einfaldlega ekki til leiks en spilaði svo vel eftir það.

„Við vorum mjög góðir í dag. Þeir skora bara þrjú mörk í byrjun. Ef við mætum svona í næsta leik þá töpum við líka. Ef við mætum klárir í leikinn á móti Stjörnunni þá getum við alveg unnið þá," bætti Kennie við að lokum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.