Fotbolti.net
10.08.26 - 18:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarliðin í stórleiknum: Tibbling ekki með Fram

Helgi Sig stýrir Fram.

Helgi Sig stýrir Fram.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Klukkan 19:15 hefst lokaleikur 18. umferðar í Bestu deild karla. Fram tekur á móti KR á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal. Liðin eru fyrir leikinn í 2. og 3. sæti og geta minnkað forystu Víkings á toppnum eftir að Íslandsmeistararnir misstigu sig í gær.

Fyrri leikur liðanna í sumar endaði með 2-2 jafntefli á Meistaravöllum.
Geta þau herjað á toppsætið? - Mikil spenna fyrir stórleik Fram og KR
TENGT EFNI

Geta þau herjað á toppsætið? - Mikil spenna fyrir stórleik Fram og KR

Lestu um leikinn: Fram 0 - 2 KR
Rúnar Kristinsson er þjálfari Fram en hann tekur út leikbann í dag. Aðstoðarþjálfarinn Helgi Sigurðsson stýrir því heimamönnum í dag. Ægir Jarl Jónasson, Sigurjón Rúnarsson og Israel Garcia taka einnig út leikbann í dag.

Helgi gerir þrjár breytingar á liði Fram frá sigrinum gegn ÍBV fyrir níu dögum síðan. Fyrirliðinn Kennie Chopart kemur inn eftir leikbann og þeir Bjarni Páll og Jakob Byström koma einnig inn. Ægir Jarl, Sigurjón og Simon Tibbling, sem fékk höfuðhögg í Eyjum, eru ekki með í dag. Óliver Elís Hlynsson kemur inn í hópinn en hann var kallaður til baka úr láni hjá ÍR í gær.

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, gerir engar breytingar á sínu liði frá jafnteflinu gegn FH fyrir fimm dögum síðan. Jón Ernir Ragnarsson kemur inn á bekknum en ungstirnið Fannar Heimisson er ekki með hópnum í dag.

Byrjunarlið Fram

  • 22. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
  • 3. Þorri Stefán Þorbjörnsson
  • 5. Kyle Douglas Mc Lagan
  • 8. Haraldur Einar Ásgrímsson
  • 10. Frederico Bello Saraiva
  • 14. Bjarni Páll Linnet Runólfsson
  • 15. Jakob Byström
  • 19. Kennie Knak Chopart (f)
  • 23. Már Ægisson
  • 25. Freyr Sigurðsson
  • 29. Vuk Oskar Dimitrijevic

Byrjunarlið KR

  • 12. Halldór Snær Georgsson (m)
  • 7. Finnur Tómas Pálmason
  • 9. Eiður Gauti Sæbjörnsson
  • 11. Aron Sigurðarson (f)
  • 17. Luke Morgan Conrad Rae
  • 21. Gabríel Hrannar Eyjólfsson
  • 23. Arnór Ingvi Traustason
  • 26. Hrafn Tómasson
  • 28. Hjalti Sigurðsson
  • 45. Galdur Guðmundsson
  • 77. Orri Hrafn Kjartansson
Baddi kemur inn í lið Fram.

Baddi kemur inn í lið Fram.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrrum KR-ingurinn Kennie Chopart snýr aftur eftir leikbann.

Fyrrum KR-ingurinn Kennie Chopart snýr aftur eftir leikbann.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar gerir enga breytingu milli leikja.

Óskar gerir enga breytingu milli leikja.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.18+4245
2Fram17+1437
3KR17+2236
4Breiðablik18+629
5Valur18-522
6ÍA18-622
7Keflavík18-622
8Stjarnan18-1021
9ÍBV18-917
10FH18-1017
11KA18-1215
12Þór18-2615
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.