Fotbolti.net
10.08.26 - 23:08
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Lengjudeild kvenna: Gengur ekkert hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar

Lengjudeild kvenna: Gengur ekkert hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Selfoss 2 - 0 Haukar
1-0 Valgerður Ósk Valsdóttir ('49 , sjálfsmark)
2-0 Stevie Madonna Reynolds ('73 )
Það gengur hvorki né rekur hjá Haukum eftir að Sara Björk Gunnarsdóttir sneri aftur í uppeldisfélagið.

Liðið tapaði gegn Selfyssingum í kvöld. Haukar hafa aðeins nælt í eitt stig úr þremur leikjum sem Sara Björk hefur spilað.

Staðan var markalaus í hálfleik en Valgerður Ósk Valsdóttir varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark og koma Selfossi yfir snemma í seinni hálfleik. Stevie Madonna Reynolds innsiglaði sigur liðsins.

Þetta var sterkur sigur hjá Selfyssingum sem höfðu tapað tveimur leikjum í röð. Liðið er í 4. sæti með 19 stig, stigi á undan Haukum sem eru í 5. sæti.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Grótta13+1229
2KR12+1523
3HK13+320
4Selfoss12+619
5ÍA13+618
6Haukar12-518
7Keflavík12+1017
8FHL12+217
9Völsungur13-412
10Tindastóll12-453
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.