10.08.26 - 21:07
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta deildin: Sögulegur sigur hjá KR á Fram

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram 2 - 5 KR
0-1 Arnór Ingvi Traustason ('4 )
0-2 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('6 )
0-3 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('29 )
1-3 Kennie Knak Chopart ('45 )
2-3 Kennie Knak Chopart ('61 )
2-4 Ástbjörn Þórðarson ('73 )
2-5 Galdur Guðmundsson ('77 )
Lestu um leikinn
0-1 Arnór Ingvi Traustason ('4 )
0-2 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('6 )
0-3 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('29 )
1-3 Kennie Knak Chopart ('45 )
2-3 Kennie Knak Chopart ('61 )
2-4 Ástbjörn Þórðarson ('73 )
2-5 Galdur Guðmundsson ('77 )
Lestu um leikinn
KR fór upp fyrir Fram í 2. sæti deildarinnar eftir sögulegan sigur í kvöld.
KR-ingar brutu ísinn strax á fjórðu mínútu þegar Arnór Ingvi Traustason skoraði með skoti við vítateigslínuna. Aðeins tveimur mínútum síðar átti Galdur Guðmundsson skot sem Viktor Freyr Sigurðsson varði upp í loftið, boltinn virtist vera á leiðinni inn en Eiður Gauti Sæbjörnsson tók enga sénsa og kom boltanum inn.
Þetta var 62. mark KR í sumar en liðið jafnaði markamet ÍA frá 1993 sem skoraði 62 mörk í 18 leikja móti.
Fram var nálægt því að minnka muninn þegar Kennie Chopart átti skalla að marki en Aron Sigurðarson var réttur maður á réttum stað og bjargaði á síðustu stundu.
Stuttu síðar skoraði Eiður Gauti þriðja mark KR og annað mark sitt. Hann fékk góðan tíma inn á teignum og skoraði með góðu skoti.
Fram náði að minnka muninn undir lok fyrri hálfleiks þegar Chopart skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu. Hann minnkaði muninn enn frekar eftir klukkutíma leik og aftur var það skallamark eftir hornspyrnu.
Ástbjörn Þórðarson skoraði fjórða mark KR af miklu harðfylgi og liðið bætti þar með met ÍA. Galdur innsiglaði síðan sigur KR stuttu síðar þegar hann skoraði af stuttu færi eftir hornspyrnu.
KR er í 2. sæti með 39 stig, sex stigum á eftir Víkingi og tveimur stigum á undan Fram sem er í 3. sæti.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 18 | +42 | 45 |
| 2 | Fram | 17 | +14 | 37 |
| 3 | KR | 17 | +22 | 36 |
| 4 | Breiðablik | 18 | +6 | 29 |
| 5 | Valur | 18 | -5 | 22 |
| 6 | ÍA | 18 | -6 | 22 |
| 7 | Keflavík | 18 | -6 | 22 |
| 8 | Stjarnan | 18 | -10 | 21 |
| 9 | ÍBV | 18 | -9 | 17 |
| 10 | FH | 18 | -10 | 17 |
| 11 | KA | 18 | -12 | 15 |
| 12 | Þór | 18 | -26 | 15 |