Fotbolti.net
10.08.26 - 23:22
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Óskar útskýrir hvers vegna hann setti Akoto inn á

Óskar útskýrir hvers vegna hann setti Akoto inn á
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það vakti athygli þegar Óskar Hrafn Þorvaldsson tók Hrafn Tómasson af velli fyrir Michael Akoto í 5-2 sigri KR gegn Fram í kvöld.

Óskar er þekktur fyrir sinn sóknarbolta en hann ákvað að stoppa í götin þar sem Fram hafði minnkað muninn í 3-2 og setti mikla pressu á KR-liðið.
Lestu um leikinn: Fram 2 - 5 KR
Óskar Hrafn var spurður út í skiptinguna í viðtali á Fótbolta.net eftir leikinn. KR vann lokakaflann 2-0 eftir að Akoto kom inn á.

„Þeir voru að herja á okkur á miðjusvæðinu varnarlega. Krummi var eiginlega orðinn miðvörður, hann er nátturulega miðjumaður að upplagi. Það vantaði hafsent í þessa stöðu," sagði Óskar Hrafn.

Óskar Hrafn: Hann hefði klárlega getað farið erlendis

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.