10.08.26 - 17:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Araujo til Liverpool á láni frá Barcelona (Staðfest)

Mynd: Liverpool

Mynd: Liverpool
Ronald Araujo er genginn til liðs við Liverpool á láni frá Barcelona. Liverpool getur keypt hann fyrir tæplega 50 milljónir punda næsta sumar.
Liverpool mun borga launin hans en hann tók á sig launalækkun til að komast til Englands.
Araujo er 27 ára en hann var ekki með landsliði Úrúgvæ á HM vegna meiðsla en hann er tilbúinn að byrja æfa með Liverpool í vikunni.
Hann getur leyst stöðu miðvarðar og hægri bakvarðar. Jeremy Jacquet byrjar að æfa með liðinu í vikunni og Giovanni Leoni er að klára endurhæfingu. Þá missir Joe Gomez af fyrsta leik tímabilsins gegn Newcastle.
„Ég er spenntur að vera hér hjá þessu risastóra félagi með mikla sögu. Ég er spenntur að hitta liðsfélagana og byrja að spila. Þetta var tilvalið skref fyrir mig á þessu stigi ferilsins, þetta var nauðsynlegt fyrir mig. Um leið og ég heyrði af áhuganum gerðist þetta mjög hratt," sagði Araujo.

Our latest addition ???? pic.twitter.com/ywKnBJmt4j
— Liverpool FC (@LFC) August 10, 2026