Fotbolti.net
10.08.26 - 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

FH í samstarf við Lifetrack

FH í samstarf við Lifetrack
Canon

Mynd: Lifetrack

Knattspyrnudeild FH og LifeTrack undirrituðu á dögunum samstarfssamning sem miðar að því að styðja við heilsu, næringu og frammistöðu leikmanna meistaraflokks karla FH á yfirstandandi keppnistímabili í Bestu deildinni..

Samstarfið hófst fyrir nokkrum mánuðum og var gert opinbert í dag. FH er á góðu skriði í Bestu deildinni, liðið er taplaust í níu leikjum í deildinni og komst í gær upp úr fallsæti í fyrsta sinn frá því snemma móts.
LifeTrack er íslenskt heilsuapp sem meðal annars reiknar út einstaklingsbundna orkuþörf notenda og hjálpar þeim að halda utan um daglega næringarinntöku. Í appinu er jafnframt lögð áhersla á fræðslu, jákvætt hugarfar og hvatningu, þætti sem skipta miklu máli þegar kemur að heilsu, endurheimt og frammistöðu í íþróttum. LifeTrack er þróað í samstarfi við fagfólk, meðal annars næringarfræðing og lækni.

Leikmenn og þjálfarar meistaraflokks FH hafa undanfarna mánuði nýtt LifeTrack til að auka skilning leikmanna á næringu og efla næringarlæsi innan hópsins. Sérstök áhersla hefur verið lögð á að leikmenn fái næga orku og næringarefni til að mæta því mikla æfinga- og keppnisálagi sem fylgir heilu tímabili í efstu deild.

„Það krefst gríðarlegrar orku að spila knattspyrnu á hæsta stigi og við töldum LifeTrack vera kjörið verkfæri fyrir okkar leikmenn til að auka skilning sinn á næringu og mikilvægi hennar yfir langt og krefjandi keppnistímabil. LifeTrack hefur reynst okkur vel og það er alveg ljóst að leikmennirnir hafa lært mikið á þessum tíma,“ segir Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari karlaliðs FH.

Samstarfið við FH er hluti af aukinni áherslu LifeTrack í að styðja við íþróttafólk og íþróttalið þar sem rétt næring, næg orka og góðar daglegar venjur geta skipt sköpum fyrir bæði frammistöðu og endurheimt.

„Við erum afskaplega ánægð með þær móttökur sem LifeTrack hefur fengið en notendur eru á öllum aldri og með allskyns markmið. Það er einnig mjög gaman að sjá hversu mörg íþróttalið og afreksíþróttafólk hafa nýtt sér appið. Það er mikill metnaður í Kaplakrika og umgjörðin algjörlega til fyrirmyndar. Þar er greinilega verið að hugsa til framtíðar og horfa heildstætt á þá þætti sem geta hjálpað leikmönnum að ná sem bestum árangri,“ segir Ingi Torfi Sverrisson, rekstrarstjóri og einn stofnenda LifeTrack
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.