Fotbolti.net
10.08.26 - 20:54
Jóhann Þór Hólmgrímsson

KR að klára Framara - 18 leikja metið slegið

KR að klára Framara - 18 leikja metið slegið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR er að vinna stórsigur á Fram á Lambhagavellinum en liðið er 5-2 yfir þegar skammt er til loka leiksins.
Lestu um leikinn: Fram 2 - 5 KR
KR náði 3-0 forystu en Arnór Ingvi Traustason kom liðinu yfir og Eiður Gauti Sæbjörnsson fylgdi því á eftir með tveimur mörkum.

Þriðja mark Eiðs var 62. mark liðsins í sumar en liðið jafnaði þar með met ÍA sem skoraði 62 mörk í 18 leikja móti árið 1993.

Kennie Chopart minnkaði muninn með tveimur mörkum en Ástbjörn Þórðarson skoraði fjórða markið og þar með sló KR met ÍA. Galdur Guðmundsson bætti síðan fimmta markinu við stuttu síðar. KR hefur því skorað 64 deildarmörk í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.