Fotbolti.net
11.08.26 - 00:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Steypustöðin

Sterkastur í 18. umferð - Væri ekki í KR nema fyrir Ými

Eiður Gauti Sæbjörnsson (KR)

Eiður Gauti var funheitur fyrir KR.

Eiður Gauti var funheitur fyrir KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Gauti Sæbjörnsson skoraði tvennu þegar KR vann Fram 5-2 í Bestu deildinni. Hann hefur skorað fimm mörk í síðustu fjórum leikjum.

Hann (1999) er Sterkasti leikmaður 18. umferðar, í boði Steypustöðvarinnar.

Eiður er uppalinn hjá HK og spilaði tíu leiki með liðinu og skoraði eitt mark frá 2016-2018. Hann fór yfir til Ýmis og fór hamförum í 3. og 4. deild. Hann skoraði 71 mark í 60 leikjum.
Óskar Hrafn: Hann hefði klárlega getað farið erlendis
TENGT EFNI

Óskar Hrafn: Hann hefði klárlega getað farið erlendis

Hann gekk til liðs við KR frá HK í fyrra og skoraði 14 mörk í 23 leikjum í Bestu deildinni. Hann hefur skorað 11 mörk í 17 leikjum í sumar. Eiður var í viðtali við Fótbolta.net eftir sigurinn gegn Fram og var spurður að því hvort hann sjái eftir skrefinu í Ými.

„Nei, það voru frábærir tímar. Ég held að ég væri ekki hér í dag nema það væri fyrir þetta skref. Þetta var áhugavert hliðarskref en skemmtilegt," sagði Eiður.

„Ég sé ekkert eftir þessu. Ég er ótrúlega ánægður hvernig þetta spilaðist út."

Sterkustu leikmenn:
17. umferð - Jökull Andrésson (FH)
16. umferð - Arnór Ingvi Traustason (KR)
15. umferð - Eiður Orri Ragnarsson (Keflavík)
14. umferð - Aron Sigurðarson (KR)
13. umferð - Aron Elís Þrándarson (Víkingur)
12. umferð - Helgi Guðjónsson (Víkingur)
11. umferð - Elías Már Ómarsson (Víkingur)
10. umferð - Freyr Sigurðsson (Fram)
9. umferð - Bjarki Björn Gunnarsson (ÍBV)
8. umferð - Anton Logi Lúðvíksson (Breiðablik)
7. umferð - Lúkas Logi Heimisson (Valur)
6. umferð - Óskar Borgþórsson (Víkingur)
5. umferð - Stefán Árni Geirsson (KR)
4. umferð - Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur)
3. umferð - Elías Már Ómarsson (Víkingur)
2. umferð - Vuk Oskar Dimitrijevic (Fram)
1. umferð - Emil Atlason (Stjarnan)
Sterkastur í 18. umferð - Væri ekki í KR nema fyrir Ými
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður gefur Galdri markið - „Ekkert mál að skora í svona liði"

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.18+4245
2KR18+2539
3Fram18+1137
4Breiðablik18+629
5Valur18-522
6ÍA18-622
7Keflavík18-622
8Stjarnan18-1021
9ÍBV18-917
10FH18-1017
11KA18-1215
12Þór18-2615
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.