Fotbolti.net
10.08.26 - 21:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Eiður gefur Galdri markið - „Ekkert mál að skora í svona liði"

Auglýsing
Eiður gefur Galdri markið - „Ekkert mál að skora í svona liði"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR vann 5-2 sigur á Fram í kvöld og komst upp fyrir þá í 2. sæti deildarinnar. Fótbolti.net ræddi við framherjann Eið Gauta Sæbjörnsson eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Fram 2 - 5 KR
„Mér fannst við vera öflugir sóknarlega, spila vel og tengja vel saman. Við tókum okkar sénsa," sagði Eiður Gauti.

Eiður Gauti virtist koma boltanum í netið eftir skot frá Galdri Guðmundssyni en Eiður gefur Galdri markið. Eiður skoraði síðan þriðja mark liðsins en hann hefur skorað fjögur mörk í síðustu fjórum leikjum.

„Ég ætla að segja að ég hafi sett eitt. Galdur má eiga fyrsta markið. Ég myndi segja að ég ætti töluvert inni. Það ekkert mál að skora mörk spilandi upp á topp í svona liði. Mér finnst eins og ég geti bætt mig annars staðar og gert meira í öðrum hlutum," sagði Eiður Gauti.

KR er sex stigum á eftir Víkingi sem gerði jafntefli gegn ÍBV í gær.

„Við vorum ekki mikið að pæla í því, bara einbeita okkur að okkar leik og sjá hvað við tökum upp úr pokanum í lokin. Það er alltaf gott að vinna leiki og halda pressu á Víking. Við vorum ekki að fara inn í þennan leik sem einhvern úrslitaleik. Þetta var bara enn einn leikur í deildinni," sagði Eiður Gauti.

Það var frábær mæting á Lambhagavöllinn í kvöld.

„Það er alltaf full stúka þegar KR er að spila. Þessir stuðningsmenn eru algjörlega geggjaðir. Hrós á þá."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.